-Kippugagnrýni.
-Um þessar mundir uppskerum við vetrarblómin. Listverk af ólíkum toga sliga hillur og borð verslana. Sú löðrandi auðlegð er liggur í þeim söngkonum sem nú eru að gefa út plötur um þessi jól er ólýsanleg. Margrét Eir er eins og orkuver, röddin hennar er eins og bjartur galdur. Ragnheiður Gröndal, seiðandi, sefandi fögur, röddin barnsleg en samt gömul,áleitin.
Færeyska Eivör Páls, þungt náttúruafl, tregaskáld og kynbomba. Hera nýsjálenska melódíu söngkonan og villiblómið.
-Það er ekki hægt að velja, þetta er eins og að drukkna í kaviar.