Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan
Horfði á myndina Borat um daginn.
Myndin er byggð á vinsælum karakter, Borat, sem leikinn er af Sacha Baron Cohen sem þekktastur er undir nafninu Ali G. Myndin heitir fullu nafni Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan. Stutt og laggott.
Myndin er semsagt um Kasakstanska fréttamanninn Borat Sagdiyev sem fer til Bandaríkjanna til að búa til heimildamynd. Í myndinni er menning Kasakstan allt öðruvísi en hin vestræna menning. Borat á erfitt með að venjast þessari menningu en Bandaríkjamennirnir eiga enn síður auðveldara með að þola Borat. Borat sér svo Pamelu Anderson í sjónvarpi og áttar sig á því að hann langar að giftast henni. Því reynir hann að ferðast þvert yfir Ameríku til að finna hana.
Að mínu mati er þetta ein af bestu myndum sem ég hef séð. Þessi karakter er eitthvað svo rosalega, æ hvað skal segja, heillandi. Þetta er bara svo fyndin og góð mynd að ekki er hægt að lýsa því með orðum!
Ég sé kæri Stalin að þú fæddist í dag . Vertu velkominn bróðir. Takk fyrir ágætt félagsrit
Ég fór á þessa ágætu mynd tvisvar og hefði ekki átt að gera það. Hún er æðisleg í fyrsta sinnið en ótrúlega leiðinleg í það seinna.
Þetta er fremur þunn gagnrýni og stutt. Þú gætir fjallað miklu betur um þessa mynd.
Það er nú aldrei talað of oft um hann Borat. Auk þess er ágætt að hafa gagnrýnina stutta og laggóða svo að einhver nenni að lesa hana.