Tileinkunn er byrði,
Atlas byrði hin sama.
Aðeins fyrir menn,
sem tómar hendur hafa.
Dýrkeypt er snilldin.
Pensilskrift eldsins,
í augu þeirra skrifuð.
Hjörðin eftir veg,
ég er samt óhreyfður steinn.
Þjáist af vegsemd.
Misskild persóna,
drukkin af konum og óð.
Óblíð veðrátta,
tær uppspretta hugmynda.
Hvar er virðingin?