— GESTAPÓ —
Ziyi Zhang
Óbreyttur gestur.
Saga - 1/11/05
Philly Cheung I

Philly Cheung – Var fríð ungleg kona, fíngerð vexti, dökk hærð og með dimm brún augu en hafði ljóst litarhaft. Hún þótti gamansöm og var drengur góður. En heldur ónærgætin og mislynd en jafnframt þótti hún einlæg og forvitin. Hún var eftirlæti föður síns sem deildi hennar dökka yfirliti og skapgerð en móðir hennar var ljós yfirlitum, brosmild og geðslegri.

Philly hljóp eftir göngustígnum með fram lauginni, undir blómstrum kirsuberjatrjánna og snéri baki í þinghúsið. Í eyrunum hafði hún lítil hvít heyrnartól sem auðkenndu Ipod spilara. Alltaf þegar hún hljóp þarna spilaði hún Aaron Copeland. Henni þótti hann viðeigandi opið umhverfi Þjóðargötunnar og hún hafði líka ávaltl haft dálæti á klassískri tónlist. Hún hafði hlaupið um stund og farið að þreyta en hún hafði þegar hlaupið vegalengd sem þykir tveimur kvenmönnum til sóma. Hún staðnæmdist við enda laugarinnar, lagði hendur á hné sér og hallaði sér fram. Eftir að hafa náð andanum á ný reisti hún sig við. Hún pýrði augun og svitin lak niður af enni hennar. Við henni blasti Minnismerkið um þátttakendur seinni heimstyrijaldarinnar.

Það glumdi í Ipod’inum (Fanfare for the common man) Philly gekk hægt að lauginni fyrir miðju minnismerkisins. Þar voru tignarlegir gosbrunnar. Hún snéri sér í hring til að sjá tákngervinga allra fylkjanna og táraðist. Hún leit í átt að Washington minnismerkinu. Hún reisti höfuðuð lotningarfull upp. Tveir fánar blöktu tignarlega sitthvoru megin við minnismerkið. Hún gekk hægt upp tröppurnar og þurkaði svitan og tárin úr andlitu sínu með hendinni.

   (29 af 29)  
1/11/05 17:01

Ziyi Zhang

Arg, þetta mun vera óuppfærð útgáfa, hún sneri vitaskuld bakinu í Lincoln Minnismerkið. Afsakið.

1/11/05 17:01

Ziyi Zhang

Arg, þetta mun vera óuppfærð útgáfa, hún sneri vitaskuld bakinu í Lincoln Minnismerkið. Afsakið.

1/11/05 17:02

Rauðbjörn

Það er gott að geta grátið.

1/11/05 18:00

Jóakim Aðalönd

Hún þurrkaði. Góð saga engu að síður.

5/12/06 13:00

krossgata

Gleðilegt rafmæli.

1/11/07 10:02

Geimveran

Til hamingju með nýjasta félagsritið.

1/11/07 11:01

Bu.

Hæ Geimvera.

1/11/07 13:01

Geimveran

Blessaður Bu. Til hammó með rammó Ziyi Zhang.

Ziyi Zhang:
  • Fæðing hér: 13/11/06 17:34
  • Síðast á ferli: 1/12/08 08:26
  • Innlegg: 75
Eðli:
Æðisleg í alla staði.
Æviágrip:
Fæddist árið 1979 í Peking, Pabbi minn er hagfræðingur og mamma mín var leikskóla kennari. Ég hef leikið í fjöld kvikmynda á borð við þvottabjarnar prinsessan, Vegurinn heim og Hetja.