— GESTAPÓ —
voff
Fastagestur.
Sálmur - 1/12/07
Eitt lítið hnífasett merkt X-B, til þín!

Flokksins menn í Framsókn.
Fjandskap rækt´ að vanda.
Bítast þar á barka,
bræður í nýjum skæðum.
Græðgin hefur glapið,
grimman, með hug dimman.
Björn að baki Guðjóns,
brosir og hnífinn losar.

   (1 af 7)  
1/12/07 22:01

Útvarpsstjóri

[Glottir]

1/12/07 22:01

Andþór

[Klappar] Snilld!

1/12/07 22:01

Álfelgur

Mjöög flott!

1/12/07 22:01

krossgata

Aaaaaaa prrrrrr [Hlær eins og Línan]

1/12/07 22:01

Upprifinn

ha ha ha

1/12/07 22:01

Huxi

Satt og snjallt. [Glottir að óförum framsóknarmanna]

1/12/07 22:02

Vladimir Fuckov

[Brestur í óstöðvandi hlátur]
Skál !

1/12/07 22:02

Skabbi skrumari

Góður... Salút...

1/12/07 22:02

Jóakim Aðalönd

[Hlær eins og Stjáni blái]

Ehgeggeggeggegg....

1/12/07 22:02

Kargur

Eðalgott.

1/12/07 22:02

Ívar Sívertsen

Stórkostlegt!

1/12/07 23:00

Günther Zimmermann

Ja, fagurlega er ort um ófagran flokk.

1/12/07 23:00

Hávarður

Tær snilld

1/12/07 23:00

Rattati

Flott. Segir eiginlega allt sem segja þarf.

1/12/07 23:01

Golíat

Glæsilegt voff.

1/12/07 23:02

Mjási

Þessar línur segja meira en mörg hnífastt.

voff:
  • Fæðing hér: 2/9/03 12:56
  • Síðast á ferli: 24/4/09 22:55
  • Innlegg: 167
Eðli:
Hundurinn Voff er hvoru tveggja flekklaus sál og glettin. Árvökull lögregluhundur með sérþekkingu á fangelsismálum.
Fræðasvið:
Afbrotafræði, fangelsisfræði, glæpasálfræði, lögfræði og guðfræði. Sjálfmenntaður að mestu utan starfsnám í fangelsum og eina önn bréfaskóla fangelsishunda í Austin Texas.
Æviágrip:
Fæddur einhvers staðar á Santa Fe vegi 1854. Skýtur síðan upp kollinum í ríkisfangelsum í Texas, Nýju-Mexíkó og Kansas, allt eftir því hvar Dalton-bræður eru staðsettir. Óvíst um dvalarstað eftir andlát teiknarans Morris, en þó talinn hafa verið innanhúss hjá Dargaud-útgáfufélaginu. Hvernig hann komst til Íslands og varð hluti af heimavarnarliði Baggalúts er flestum hulin ráðgáta.