— GESTAPÓ —
Fræ
Fastagestur.
Dagbók - 6/12/07
Topp tíu listi. Tíu.

Þetta er topp tíu listi.

Topp tíu listi yfir ástæður þess að ég hef ekki sett in nýjan topp tíu lista síðan égveitekkihvenar.

Tíu. Mér var haldið í gíslingu í ónefndu ríki á meginlandi evrópu.

Níu. Ég skuldaði pólsku mafíunni peninga og þeir brutu á mér vísi og baugfingurna.

Átta. 33.6K mótaldið mitt bilaði og ég fékk ekki varahluti í það.

Sjö. Ég var í leynilegri sendiför í óþekktu sólkerfi.

Sex. Ég féll fyrir aprílgabbi Baggalúts.is.

Fimm. Það var einhver að nota símann.

Fjórir. Windows has not detected a keyboard, press any key to continue.

Þrjú. Ég fór í fílu útí ykkur öll, þið bara föttuðuð það ekki.

Tvö. Það var orðin svo mikill spenningur í ykkur fyrir nýjum lista að ég var hræddur um að standast ekki væntingar.

Eitt. Ég var bara þurrausinn.

   (12 af 21)  
6/12/07 05:01

hlewagastiR

Núll: Ég hélt að sumarlokunin væri þegar brostin á.

6/12/07 05:01

Huxi

Og enn er ég hundsaður... [Krossbölvar öllu í sand og sement, reytir hár sitt og skegg, ríkur út og skellir þessu lélega félaxriti á eftir sér]

6/12/07 05:01

Fræ

Mínus einn. Ég var úti að hjóla með Huxa.

6/12/07 05:02

Ívar Sívertsen

mínus tveir: Ívar Sívertsen er bara svo skemmtilegur að það þarf ekki topp tíu lista.

6/12/07 05:02

Goggurinn

Hva, bara horfið aftur til fornaldar? Ekkert númer núll?

6/12/07 05:02

Ívar Sívertsen

Jú, hlebbi sá um það

6/12/07 05:02

Goggurinn

Hvurn andskotann varðar mig um það! (mér sýndist þetta vera nú!... enda er ég staurblindur)

6/12/07 06:00

Gísli Eiríkur og Helgi

þu átt þettað alt saman Fræið mitt . Hvílík snild !

6/12/07 06:00

Huxi

[Kemur aftur inn í félaxritið og knúsar Fræið] Þakka þér innilega, þakkaþér... [Fær rykkorn í augað] Alltaf er nú hægt að treysta því að einhver muni eftir manni á þessum síðustu og verstu tímum. [Vökvar Fræið með vel kóbaltbættu ákavíti]

6/12/07 06:00

Jóakim Aðalönd

Mínus sextíu: Þú varst ráðinn í að pússa alla peningana mína í peningatanknum...

6/12/07 06:01

Dexxa

Flottur listi.. reynar eru allir listarnir flottir ;)

6/12/07 06:01

Vladimir Fuckov

[Hrökklast afturábak og hrasar við]

6/12/07 01:01

Sumarlokunardraugur

BÚ!

Fræ:
  • Fæðing hér: 26/4/06 12:17
  • Síðast á ferli: 1/3/13 20:56
  • Innlegg: 303