Pjetur er tækifærissinni en þó hjálpsamur og léttur í lund.
Fræðasvið:
Andmæli og útúrsnúningar. Styrjaldir.
Æviágrip:
Spilaði á trommur í sextett Gert Thorvalds á Borginni árin ´56-´58. Vélvirki fyrir Lufthansa frá 1962- 1973. Var gagnnjósnari vestur-þýzkra yfirvalda í Bader-Meinhof samtökunum. Sat í stjórn Kaupfélags Stöðfirðinga 1980- 1984. Klauf Framsóknarfélagið Eyvind á ársfundi 1989. Stundaði fasteignabrask í austur-Afríku á árunum 1992-1996, síðasta skráða búseta í Lúxemborg, engar spurnir hafa farið af Pjetri síðan 1999. Ræðismaður furstadæmisins Seborga.