— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Gaz
Fastagestur.
Dagbók - 1/12/06
Karlar "eiga" að sjá um konurnar sínar.

Mig langar að lemja þessar stelpur.

Þar sem ég gekk í mestu makindum frá skólahúsinu og niður í átt að stúdíóinu þar sem myndmenntin mín er þá lenti ég í því að labba á bak við tvær stelpur. Ekkert svosem að því, að hafa tvær myndarlegar stelpur á tvítugsaldrinum fyrir framan sig. Eitthvað að ylja hjartanu svona í rigningunni. En þar sem ég gekk í þögn og þær voru svona eitthvað að spjalla þá komst ég barasta ekkert hjá því að heyra í þeim.
Ég býð semsagt upp á smá tilvittnanir í heim þessara telpna.
(Þýtt frá sænsku.)
"Ég er svo búin að fá nóg af því að heyra um hvernig konur höfðu það áður, við höfum það alveg nógu gott núna!"
"Feministar þurfa að redda sér lífi, það er asnalegt að vilja að karlar séu eins og konur."
"Mig langar ekki í algjört jafnrétti."
"Konur ERU lægri settar körlum."
"Karlar eiga að sjá um konurnar sínar."

Þar sem ég var þreytt og upptekin af öðru þá nennti ég ekki að reyna að fá þessa fávita að skilja hvað það þýðir sem þær voru að segja. Agalega varð ég reið! Svona þegar maður er búin að stressast og snúast og komin í stólinn sinn þá kemur þetta upp aftur. Svakalega langar mig að taka í þessar stelpur og slá utan undir!!
Að svona stelpur geti gengið stoltar eftir götum bæjarins og haldið því framm að þær hafi rétt fyrir sér.
Hvers vegna í andskotanum ganga þær í skóla? Ef þeim langar bara til að verða berrassaðir, óléttir, kynlífsþrælar í eigu miðaldra manns, bara fyrir þá ástæðu að hann á péning til að borga matinn ofaní þær, hversvegna eru þær þá í leit að menntun?
Það er jú það sem svona fólk vill er það ekki?
Þær vilja allavega ekki fá borgað jafn mikið og karlmenn.

   (21 af 39)  
1/12/06 11:01

Regína

Iss, þær nenna bara ekki að vinna.
Annars er þetta ótrúlegt. Eru þær virkilega sænskar?

1/12/06 11:01

Dula

Svona er þetta bara, sumar konur (ótrúlegt en satt) vilja bara vera í fullkominni einangrun inni á sínu heimili og finna öryggi hjá manninum sem hugsar um þær.

1/12/06 11:01

Gaz

Málið er að þó að svona konur séu til, (og til eru karlar sem langar í svoleiðis konur) þá er það sem pirrar mig mest að þær virðast ekki fatta það að jafnrétti hefur að gera með valið!
Og já, þær eru sænskar!

1/12/06 11:01

Nermal

Ertu með númerið hjá þeim?

1/12/06 11:01

sphinxx

Óó bláa dótið gerir þetta.

1/12/06 11:02

Jarmi

Lesbian much?

1/12/06 11:02

Dula

1/12/06 11:02

krumpa

Sammála öllum nema Nermal og skildi ekki Sphinxx. Næ bara ekki upp í nefið á mér - ótrúlegt að skattpeningar fari í að mennta druslur sem ætla sér að vera berfættar eldhúsmellur.... þær eiga frekar að mennta sig í nærbuxnaþvotti og bróderingum. Samt ótrúlega mikið til af UNGUM konum með þennan hugsanagang - jafnvel þó að þær séu með eitthvað í farteskinu sem við köllum menntun - svona kjánaprik verða þó aldrei raunverulega menntuð.

1/12/06 11:02

Hakuchi

Þú verður að finna steininn þaðan sem þær skriðu undan og segja þeim til syndanna.

1/12/06 11:02

feministi

Þær eiga eftir að þroskast og reka sig á seinna meir. Þessar vesalings stúlkur eru fórnarlömb eigin fáfræði og okkur hinum ber að uppfræða þær og alla aðra sem svona er ástatt fyrir. Vlad, nú reynir á þig átt þú ekki fullt af græjum? Getum við ekki fiktað svolítið í tímavélinni og breytt henni í jafnréttisvél?

1/12/06 12:01

Offari

Þetta segir manni bara það eins og ég reyndar vissi fyrir að konur geta bara ekki séð um sig sjálfar

1/12/06 12:01

Þarfagreinir

Omegaliðið myndi klappa þessum stelpum á kollinn og gefa þeim Jesúlímmiða.

1/12/06 12:01

Blástakkur

Eru þetta bara ekki einhverjar ofverndaðar puntudúkkur sem aldrei hafa þurft að vinna fyrir sér á ævinni. Hélt að flestar stúlkur á Íslandi kæmust ekki upp með það.

1/12/06 15:02

Jarmi

Er ekki frekar sniðugt að setja út á stelpurnar fyrir þeirra skoðanir? Soltið svona "mín skoðun er réttari og því ættuð þið að skammast ykkar!"
Hvað með fólk sem gengur í herinn því það óskar að láta skipa sér fyrir og veit fátt betra en agi í sínu lífi? Hvað með fólk sem óskar að stunda BDSM kynlíf og láta drottna yfir sér? Er þetta fólk ekki bara allt fífl því það vill ekki lifa sínu lífi undir sinni eigin stjórn?
Skoðanir stúlknanna ber að virða eins og allra annara svo lengi sem þær reyna ekki að troða þeim uppá annað fólk. Ef þær vilja vera undirmenn karla sinna hversvegna í ósköpunum viljum við hefta frelsi þeirra til að gera það með því að setja út á þær og tjá okkur um þær á niðrandi hátt?
Það hafa ekki allir sömu langanir, ætlanir og þrár í þessu blessaða lífi.
Þessar stelpur vilja vera undirokar og það er þeirra val.

1/12/06 16:02

sphinxx

Má ég fá Jesúlímmiða líka?

1/12/06 16:02

Dula

Jarmi minn, hjartanlega sammála þér sluuuurp

Gaz:
  • Fæðing hér: 10/2/06 00:25
  • Síðast á ferli: 7/9/09 16:15
  • Innlegg: 533