— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Gaz
Fastagestur.
Dagbók - 1/11/05
Óþverrar og Aðrir Skíthælar.

Þar sem að ég er einhverra hluta vegna ekki að geta gert heimavinnuna mína fyrir sjálfri mér þá er ég hér komin til að rífa kjaft.

Skólinn minn er rændur!
Einhverjir skítalabbar brutust inn um helgina og stálu tölfunum úr tölfustofunni. Um er að ræða 16 stykki, innan við ársgamla, makka. Þjófarnir vissu akkúrat hvert þeir ætluðu, hvað ætti að taka og það sem verra er. Það lítur út fyrir að einhver óþverri hafi gert þjófavarnarkerfið óvirkt innanfrá, einhverntíman í vikunni sem leið.
Hverskonar helvítis skíthæll rænir eigin skóla? Skóla sem er ekki rekinn af ríkinu og þar með á enga von um að geta fengið péning til að kaupa nýar tölfur?
Jújú, skólinn er tryggður, en sjálfsábyrgðin er svo há að það er alls enginn séns á að það sé hægt að kaupa nýar tölfur. Skólin er semsagt næstumþví tölfulaus þar till "kannski" næsta eða þarnæsta ár.
Andskotans drullusokkar!
Þetta er fullorðinsskóli. Framhaldsnám sem er ekki tengt við venjulega "gymnasiet" í svíþjóð. Fólk kemur í þennan skóla til að læra og til að reyna að komast lengra í lífinu. Tölfunám er eitt av vinsælustu valfögunum og næstum öll önnur fög fara yfir í tölfustofuna öðru hverju. Þessar maskínur voru mikið notaðar till að leita sér upplýsinga fyrir námið!

Ég vona að þessi fífl verði tekin af löggunni áður en ég kem höndunum yfir það. Ég get ekki ábyrgst að ég mundi sleppa þeim lifandi frá mér og ég nenni ekki að sitja í fangelsi.

‹Urrar og brýnir hnífinn.›

   (24 af 39)  
1/11/05 13:01

B. Ewing

[Lánar Gaz varalykilinn að hinni konunglegu pyntingatólageymslu Baggalútíu]

1/11/05 13:01

Gaz

[Glottir kvikindislega.]

Takk B. Ewing.

1/11/05 13:01

hundinginn

Hafðu ekki áhyggjur. Jeg er þess full viss, að íslenzkukennsla komi í stað tölvuvinnslu strax á næstu önn.

1/11/05 13:01

Aulinn

Töflu eða tölvu?

1/11/05 13:01

Gaz

BAH!
Ég skrifa "tölvu" alltaf með f-i án þess að pæla neitt sérstaklega. Hef ávallt gert það. Fékk ekki villur fyrir það í stafsetningunni í íslensku svona endur fyrir löngu.
Nenni ekki að laga!
[Öskrar á heimavinnuna sem er ekki að gera eins og hún vill!]

1/11/05 13:01

Hakuchi

Þessir Rómverjar eru klikk.

1/11/05 13:02

Nermal

Þetta var pottþétt Árni Johnsen !!

1/11/05 13:02

Dula

Pakk, hyski, lýður og skríll.´
Ég finn ekki nógu sterk orð.

1/11/05 14:00

Jóakim Aðalönd

Össs...

Annars sýndist mér þú fyrst vera að tala um töflur. Hvað höfðu menn að gera við að stela töflum. Svo hló ég með sjálfum mér þegar ég las betur. Líklega eru lonníetturnar farnar að gefa sig, enda frá árinu 1923.

1/11/05 14:01

Blástakkur

Ég er nokkuð viss um að Fólskumálaráðuneytið stendur ekki á bakvið þetta dularfulla rán. En það er aldrei að vita hverju Haraldur getur tekið upp á.

1/11/05 14:01

Gaz

Haraldur er ekki nemandi í folkhögskola í svíaríki.

Já þið heyrðuð það. Það er búið að útiloka aðra möguleika. Þjófurinn er NEMANDI sem rændi eiginn skóla!

1/11/05 14:01

Dexxa

Djöfulsins fífl!

Gaz:
  • Fæðing hér: 10/2/06 00:25
  • Síðast á ferli: 7/9/09 16:15
  • Innlegg: 533