— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Dula
Heiðursgestur.
Dagbók - 3/12/09
Örverpið sex ára

Hvað á kona að gera sem hefur staðið í þeirri trú að hún sé hálfgerður unglingur ennþá þegar upp rennur sex ára afmælisdagur örverpisins , að vísu er hún ekkert alvöru örverpi hún kom rétt á eftir bróður sínum þannig að það eru engin tíu ár einsog hjá alvöru örverpum.

Í morgun vaknaði ég án þess að verða vör við nýja hrukku á andlitinu, enda er ég auðvitað með fullkomna húð , eða svo er mér sagt þannig að ég mun ekki verða hrukkótt fyrir sextugt.
Dótti mín vaknaði hins vegar gjörbreytt, hún var mikið stærri og sterkari, hún var orðin merkilegri en allir í leikskólanum og fékk kórónu, svo sungu allir fyrir hana og það var hægt að fá muffins með morgunkaffinu, sko súkkulaði,
Hún er búin að missa tvær tennur og hún er alltaf á leiðinni að slíta lausu augntennurnar úr líka, en það sem hún gerir sér ekki grein fyrir er að þær losna ekki þegar hún vill að þær losni heldur losna þær alltaf að sjálfu sér, henni er auðvitað alveg sama um það.
Hún vill fara í sparikjólnum allt sem hún fer, hún vill göt í eyrun og eyrnalokka, hún vill fá prinsessu þetta og brats hitt með barbíbleikum fylgihlutum sem eru demantsskreyttir með allavega pallíettum og fjaðraskúfum, smekkmanneskja eins og mamma sín .

Þessi yndislega mannvera er sex ára í dag og ég veit bara ekki hvernig svona skemmtilegt og fullkomið barn kom frá okkur foreldrunum sem erum bæði eins ófullkomin og hugsast getur.

   (16 af 46)  
3/12/09 18:01

Hvæsi

<Klórar sér í pun... ég meina höfðinu>
Sex ára ? Hvernig má það vera, þú ert bara 4 ára ?

Annars til hamingju.

3/12/09 18:01

Grýta

Til hamingju með prinsessuna Dula.

3/12/09 18:01

Vladimir Fuckov

Hvæsi: Hugsanlega bendir þetta til að vjer þurfum að bæta nöfnum á listann yfir grunaða tímavjelarþjófa.

En til hamingju.

3/12/09 19:01

Leiri

Barnið hefur bara verið svona heppið að slumpast til þess að fá réttu genin frá ykkur báðum og þið sitjið eftir með sárt ennið og handónýtu genin ein eftir! En það er til þess vinnandi. Til hamingju með örverpið!

3/12/09 22:01

núrgis

Til lukku með kvikindið. Ég á tvö svona sem rífa kjaft við mig á útlensku.Fokk nós væ..?

Dula:
  • Fæðing hér: 18/1/06 17:09
  • Síðast á ferli: 10/11/23 13:19
  • Innlegg: 22400
Eðli:
Dula er mit nafn og ég er best. Og svo get ég verið orðheppin, kemur líka fyrir að menn hlæi jafnvel upphátt þegar ég tjái mig.
Fræðasvið:
Ég er mjög fróð um mjög margt. En kannski ekkert alltof vitur um neitt. En fæ oft hugboð og fer eftir þeim. Er berdreymin , það er að segja ef ég er ber þá dreymir mig um ber.
Æviágrip:
Ég er fædd í október er sérlega glæsileg. Allsherjar snillingur og matgæðingur. Þar að auki kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu, það þýðir að ég hef yfirumsjón með pörum og einhleypingum í Baggalútíu Og vil fá að vita hver hefur samfarir við hvern eftir alla merkilega atburði í baggalútíu.