— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Dula
Heiðursgestur.
Gagnrýni - 9/12/08
Drag me to hell.

Dró frumburðinn með mér í bíó og þar sem við erum bæði fyrir smá hrylling og spennu með dass af blóði í bland þá ákváðum við að skella okkur á hina stórgóðu hryllingsmynd, Drag me to hell.

Söguþráður myndarinnar er á þá leið að ung stúlka lendir í því óláni að verða fyrir bölvun frá sígaunakerlingu nokkurri, maður þessarar ungu konu er sálfræðingur og trúir ekki á svona hjátrúar bull en tekur nú samt mark á henni bara til að sanna ást sína á henni, hann lætur ýmislegt yfir sig ganga til að reka út illu andana en allt virðist vinna á móti þeim skötuhjúum.

Þessi mynd er uppfull af skemmtilegum bregðiatriðum þar sem maður er kannski nýbúinn að vera að hlæja að skemmtilegum uppákomum þar sem vofa gömlu kerlingarinnar er ansi uppátækjasöm við ungu konuna og svo kemur skrattinn úr sauðaleggnum strax þar á eftir og maður pissar á sig af hræðslu.
Meiriháttar skemmtileg hryllingsmynd .

   (26 af 46)  
9/12/08 15:02

Jóakim Aðalönd

Þarf önd sumsé að fara í bleiu í bíó? Ég fer frekar á Antichrist. Þar þarf önd bara ælupoka...

9/12/08 15:02

Dula

Ojj já ég hugsa að Jón Baldvin kalli nú ekki allt ömmu sína miðað við að hafa verið giftur sömu konunni í öll þessi ár, en ég leyfi honum að fara á þessa mynd í minn stað. Það virðist bara hafa verið viðbjóður þar á boðstólnum , ekkert glens eða grín.

9/12/08 16:01

Þarfagreinir

Það færi betur á því að hafa titil félagsritsins á íslensku. Dragðu mig til Hellu held ég að dugi sem þýðing.

9/12/08 16:01

krossgata

Hræðslumynd með húmör? Hugsanlega þess virði að slá kúlulán fyrir?

9/12/08 16:01

Hugfreður

Er það ekki vandræðalegt að pissa á sig í bíó? Tóku margir eftir því?
Langt síðan ég fór á hræðslumynd í bíó sennilega ekki síðan á Atvika Sjóndeildarhringinn fyrir mörgum árum síðan, þessi hljómar vel. [Fær sér kaffisopa]

9/12/08 17:00

Dula

Ég fer alltaf með pampers á svona myndir og ég held að bærinn hafi verið ansi langt frá Hellu , það var töluð útlenska í henni.

9/12/08 17:00

Vladimir Fuckov

Var þetta kannski Hell í Noregi ?

9/12/08 19:02

Grágrímur

Ef ykkur langar að sjá fína hrollvekju mæli ég með norska snilldarverkinu Död snö eða Dauðafönn...
Nasistauppvakningar, keðjusagir og flest annað sem góðan hroll þarf að prýða...

http://www.imdb.com/title/tt1278340/

Dula:
  • Fæðing hér: 18/1/06 17:09
  • Síðast á ferli: 10/11/23 13:19
  • Innlegg: 22400
Eðli:
Dula er mit nafn og ég er best. Og svo get ég verið orðheppin, kemur líka fyrir að menn hlæi jafnvel upphátt þegar ég tjái mig.
Fræðasvið:
Ég er mjög fróð um mjög margt. En kannski ekkert alltof vitur um neitt. En fæ oft hugboð og fer eftir þeim. Er berdreymin , það er að segja ef ég er ber þá dreymir mig um ber.
Æviágrip:
Ég er fædd í október er sérlega glæsileg. Allsherjar snillingur og matgæðingur. Þar að auki kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu, það þýðir að ég hef yfirumsjón með pörum og einhleypingum í Baggalútíu Og vil fá að vita hver hefur samfarir við hvern eftir alla merkilega atburði í baggalútíu.