Ég get fátt sagt um mig að svo stöddu. Málið er í nefnd.
Fræðasvið:
Gríðarlega mikil vitneskja um skæruhernað með tilliti til þjónustustarfa.
Æviágrip:
Fæddist með silfurskeið í munni og fékk leið á því. Stakk af að heiman um þriggja ára aldur og fór að vinna í gúanói. Gúanóið fór á hausinn skömmu síðar. Fékk sér vinnu við umferðarstjórnun fjögurra ára en olli of mörgum árekstrum. Gekk þá í Hjálpræðisherinn sem gafst upp og lagði á flótta. Litið er á Runólf sem liðhlaupa og föðurlandssvikara í Hjálpræðishernum. Hefur síðan verið þjónn hjá hinum og þessum. Þjónar nú Hakuchi.