— GESTAPÓ —
lappi
Heiðursgestur.
Dagbók - 9/12/07
Að haustnóttum.

Senn er þetta yndæla og ég verð að segja frábæra sumar senn á enda. haustið færist að með regni og vindgangi í meira lagi.
Vonandi verður veturinn okkur vesælum og ÖÐRUM ferfættlingum góður.
það brennur á okkur þessar síðustu vikur og daga, fallandi gengi ,hrap á hlutabréfum hækandi bensínverð og matvörur fara upp úr öllu horngrýtis valdi, hvar enda þessi ósköp mér er spurn?
Eigum við að taka upp Efru eða halda í okka<r gömlu og að eg segi bráð-ónítu krónu?

Fallandi gengi krónan er kúl
kómdu nú Dabbi í ræl.
Seðlarnir farnir puðandi púl,
piltar nú kveð ég með stæl.

   (1 af 9)  
9/12/07 22:02

hlewagastiR

Segðu!

9/12/07 22:02

The Shrike

<Segir>

9/12/07 23:00

Upprifinn

flott mynd og fín pæling.

9/12/07 23:00

Skabbi skrumari

Skemmtilegt félagsrit Lappi minn... Skál

9/12/07 23:02

Huxi

Jú, jú það haustaði svona í fyrra líka. Skuggaleg mynd hjá þér þó... Svo mættirðu prófarkalesa félaxritið og laga aðeins til. Það er fallegra.

10/12/07 03:02

Wayne Gretzky

Skemmtilegt hjá þér lappi minn.

8/12/18 15:01

lappi

Heim í heiðanna ró,þar ég dansaði og hló
hundarnir sungu í kór.

lappi:
  • Fæðing hér: 24/10/05 22:18
  • Síðast á ferli: 18/11/20 15:00
  • Innlegg: 4008
Eðli:
Lappi karlinn kom hingað á Lútinn 24/ 10 vegna þess
að besti frændi hanns og æskuvinur, var afmáður eða svoleiðis
héðan af lutnun.
Fræðasvið:
Óbreittur almúgamaður,,Skólaganga , barna og lífsinsskóli.´ Með ,gráðu,. Lífið mig hefur leikið við ljúfar átt hef stundir. rétt af gömlum sveita sið sjálfur tek þar undir.
Æviágrip:
kom á lútinn., 24/10- 2005,

Frekar aldurhniginn en samt ungur í andanum,.
hef stundað allslags störf um daganna. Sjósókn á mínum
ingri árum.oft á tíðum sukksamt eins og gefur að skylja
á trillum , árabátum , og Mótorkúkútterum. En mikið var
lífið dásamlegt þá ,.Svo liðu árin við allskonnar störf bæði
á sjó og landi. Svo hófst alvara lífsins, hjúskapur kona og
börn,. Tveir ljúfir pabbastrákar sem nú eru báðir fullornir
menn.Annar floginn ú hreiðrinu ,á konu og tvær yndislegar
afa og ömmu hnátur,Nú erumvið gömlu brínin og litli stóri svanurinn
okkar,eftir í hreiðrinu.