— GESTAPÓ —
Í uppáhaldi:
Félagsrit:
Sloppur
Heiðursgestur.
Dagbók - 31/10/05
Lesbískt kynlíf vs. klám í Germaníu!!

Mjög svo óreglulegar færzlur úr hinni kynngimögnuðu dagbók Sloppsins: "Bandingi á Ferð"

Jæja minn kæri Bandingi.
Nú er jég að verða hræddur, því eftir einungis 9 tíma mun jég sitja í flugmaskínu á leið til höfuðstaðar Germaníu, Berlínarbollu í enn eina stórhættulega njósnaferðina.
Í þetta sinnið er ferðinni heitið á sýningu, þar sem framleiðendur og aðstandendur kynlífs- og klámmenningar evrópu koma saman og keppast um hylli og peningaveski hins almenna perverts.
Er þetta stærsta sýning sinnar tegundar í Evrópu og eru sýningarnar í Vegas víst þær einu sem eru stærri en þessi.
Þetta verður alveg stórhættuleg för, þar sem freistingarnar og óvinir ríkisins verða á hverju strái og munu reyna allt til að leiða mig á villu vegar.

Verð jég því að vera staðfastur og með augun á takmarkinu, sem að sjálfssögðu er að eignast þennan iðnað í þágu Alheimsveldisins Baggalútíu!
Að sjálfssögðu þarf jég að vera viss um að engar sprengjur eða eitthvað þaðan af verra leynist í skorum og innan í sílíkonblöðrum þarna og mun jég því þukla og káfa á öllu sem jég sjé og kem höndum yfir.
Mögulega mun jég taka með mjér sýnishorn af vopnum kynlífshersins, en þau munu víst vera margskonar og mörg hver rafknúin. Þarf að fara með þau á rannsóknarstofuna til greiningar.
En, kæri Bandingi, nú verð jég víst að fara að dusta rykið af huliðssloppnum og setja tannburstann ofan í tösku.
Óskaðu mjér góðs gengis!

Sloppur ‹sem langar þó svolítið í mynd af sjálfum sjér og fallegri klámmyndastjörnu›

   (5 af 20)  
31/10/05 18:02

Enter

Hmmm.

31/10/05 18:02

Anna Panna

Maður hefur nú heyrt um frakkaklæddu kallana, þessir sloppklæddu eru greinilega ekkert betri!

31/10/05 18:02

Þarfagreinir

Það sem menn leggja ekki á sig í nafni vísindanna.

31/10/05 18:02

Herbjörn Hafralóns

Muntu ekki halda kynningu fyrir Gestapóa þegar þú snýrð aftur heim?

31/10/05 18:02

Tina St.Sebastian

Ert þú þessi skrýtni sem hangir alltaf í grænmetisdeildinni í Hagkaupum og flissar?

31/10/05 18:02

Herbjörn Hafralóns

Muntu ekki halda kynningu fyrir Gestapóa þegar þú snýrð aftur heim?

31/10/05 18:02

Galdrameistarinn

Mæli með að sloppur finni mynd af klámmyndastjörnu á netinu, finni svo mynd af sjálfum sér og læri svo á myndvinnsluforrit og feiki þetta bara eins og kellingarnar sem gera sér upp fullnægingu.

31/10/05 18:02

Sloppur

Jég hef tekið þá ákvörðun að vera upp með mjér yfir að sjálfur Enter skuli hafa verið fyrstur til að leggja mjér orð í belg, þó eitt og sjér hafi verið.

Anna mín, frakkarnir eru afkomendur Sloppa.

Ætli jég gangi heill til skógar á eftir Þarfi?

Herbjörn, jég mun skoða þetta með kynninguna, en ætla að reyna að færa inn helzt nokkrum sinnum á dag skýrzlu um gang mála.

Jég kemst aldrei svo langt inn í Hagkaup Tina mín.

Galdri minn, jég hjélt að þú þekktir mig betur en þetta. Hjá mjér er ekkert "feik" !

31/10/05 19:00

Vladimir Fuckov

Vjer bendum yður á að ef þjer rekist á rykfrakkaklæddar konur með hatt, dökk gleraugu, fulla vasa og hendur í vösum þurfið þjer að þreifa sjerlega vel á þeim auk þess sem nauðsynlegt er fyrir yður að vera vel vopnaður. Þar gæti nefnilega verið um óvini ríkisins að ræða.

31/10/05 19:00

bhelgason

Góða ferð. vér bíðum eftir frettum frá þer frá germaníu

31/10/05 19:00

Galdrameistarinn

Er hægt að treysta því að þú póstir þá myndunum hér inn?

31/10/05 19:00

Sloppur

Vlad minn, er um eitthvað annað en óvini ríkisins að ræða á stað sem þessum?

Þakka þjér fyrir bhelgason minn. Vjér reynum að vera í sem beztu sambandi við heimahagina, s.s. Alheimsveldið Baggalútíu!

31/10/05 19:00

Sloppur

Galdri minn, auðvitað munum vjér leka þeim myndum hjér inn. Annað væri ekki sanngjarnt! En auðvitað er um óvin ríkisins að ræða, þannig að vjér munum mögulega vera að leita á viðkomandi aðila! [glottir út í annað]

31/10/05 19:00

Skabbi skrumari

Í hættuferð til framandi landa,
fyrir Baggalútíu,
Sloppur mun þar stoltur standa,
og stríða Germaníu.

Gangi þér vel...

31/10/05 19:01

Ned Kelly

Lesbískt kynlíf eða klám í Germaníu. Mér er sama hvort ég fæ.

31/10/05 19:02

Jóakim Aðalönd

Já, þetta líst mér á Sveinbjörn!

31/10/05 20:01

Úlfamaðurinn

zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

Sloppur:
  • Fæðing hér: 10/10/05 02:09
  • Síðast á ferli: 12/7/16 21:36
  • Innlegg: 2546
Eðli:
Ferðasloppur sem aldrei getur setið lengi kyrr!
Fræðasvið:
Er nokkuð víðlesinn, en þó einna helst á Ísfólkið! Hef lagt stund á klæðafræði og klæðaleysisfræði! Er með Doktors- og Mastersgráðu í klæðum og afklæðum!
Æviágrip:
Fæddist fyrst sem grenitré á Steinöld hinni síðari, sem til að koma í veg fyrir allan misskilning síðar var kölluð Steinsmuga. Var látinn vaxa í 12 ár og var þá höggvinn niður og notaður í klósettpappír.
Önnur tilvistarkreppan var árið 1885 f.Kr og fæddist þá sem gömul, sjúkdómasjúk mjólkurfata. Lést árið 1884 f.Kr. eftir að fjósamaðurinn reyndi að fleka geldneytið. Kramdist undir fjósamanninum.
Hannyrðingurinn Aristóteles kom með snið til föður míns og bað hann að hanna á sig eitthvað annað en þennan bévaða kufl sem faðir minn hannaði svo eftirminnilega árið áður. Hann vildi fá eitthvað sem hægt væri reyra jafnt að sér, sem og að losa um eftir miklar máltíðir.
Afraksturinn varð ég. Ég er allra fyrsti sloppurinn í mannheimum!