— GESTAPÓ —
Offari
Heiðursgestur og  skriffinnur.
Pistlingur - 2/11/07
Mús drukknaði í álverinu.

Ég er reyndar að leka þarna út trúnaðarupplýsingum, en mér finnst málið það stórt að það verður að koma fram.

Starfsmaður í baðhúsi kom að druknaðri mús er hann mætti til vinnu síðastliðinn þriðjudag. Músin var í skúffu fyrir framan aðgerðaskjá sem stjórnaði vélbúnaði baðhúsins. Eitt vakti þó strax athygli að skottið á músini hafði verið fest og sú festing augljóslega gerð af mannavöldum. Málið var því sent tafarlaust í rannsókn og skipuð fimm manna rannsóknarnefnd.

Fljótlega beindust spjótin að manni sem áður hafði verið starfsmaður í baðhúsinu. Hann viðurkenndi að hann hefði fest músina en bætti svo við að æðri maður hafi sagt honum að gera það. Sá játaði því að hafa sagt Honum að festa músina en hann hefði ekki sett vatnið í skúffuna.

Nú fór málið að flækjast því enginn vildi kannast við að hafa sett vatnið í skúffuna. Ransóknarnefndin fór þá að skoða glæpavettvanginn betur. Leitað var að sporum og mögulegum vatnsílátum. Er einn nefndarmanna var að skoða í skúffuna fékk hann á sig vatnsdropa. Er hann kíktu upp sá hann sér til mikilla undrunar að hann gat séð neðan í þakið sem var sirka 35 metum beint fyrir ofan skúffuna.

Þakleki var því skýringin á druknun músarinar. Smiðirnir voru yfirheyrðir en þeir sögðust hafa farið eftir teikningum og notað efni sem verktakinn skaffaði. Verktakinn sagði að efnisvalið hafi verið hönnuðana. Hönnuðurnir sögðu að ekki hafi það verið þeir sem ákváðu að byggja þetta álver.

Aftur flæktist máli því sumir í ransóknarnefndini höfðu nefnilega verið með í ákvörðunini að byggja álverið. Einn nefndarmanna sem ávalt hafði mótmælt bygginguni hélt mikla ræðu um ábyrgð og hagsmunaárekstra. Þar sagði hann að nefndin væri óhæf og því ætti að kjósa nýja nefnd.

Einn nefndarmannana tók þessu illa sagði ómaklega að sér vegið og sagði sig úr nefndini. Formaður nefndarinar sagðist ekkert hafa að fela og félagi hans í nefndini sagði að ekki þyrfti endilega að kjósa nýja nefnd þótt hann teldi að framkvæmdastjóri nn væri ekki að vinna með sér og ætti því að víkja.

Framkvæmdastjórinn sagðist ætla að sitja sem fastast enda væri hann ekki sökudólgurinn því ekki stjórnaði hann veðrinu. Starfsmaður baðhúsins var orðinn þreyttur á seinagangnum og tók því til sinna ráða keypti nýja mús, tengdi skottið á henni við tölvuna og ræsti vélasamstæður baðhúsins með músini.

   (36 af 52)  
2/11/07 19:00

Z. Natan Ó. Jónatanz

Listafín lesning. Helvíti skondið, en um leið mjög alvarlegt.

2/11/07 19:00

Lokka Lokbrá

Sterk og góð dæmisaga um ástand og ábyrgð.

2/11/07 19:00

Billi bilaði

Þetta er með þínum bestu ritum.

2/11/07 19:01

krossgata

Starfsmaðurinn örugglega þurft að borga músina sjálfur.

2/11/07 19:01

Sæmi Fróði

Stórskemmtileg dæmisaga.

2/11/07 19:01

hlewagastiR

Þeir vildu endilega virkja þarna austur á Kárahnjúkum. Og hvað gerðist? Jú, saklaus mús varð að gjalda fyrir með lífi sínu. Óþverrar!

2/11/07 19:01

Hvæsi

Snilldar rit offari. Snilldar rit.

Og Hlebbi, það er ekkert álver á kárahnjúkum.

2/11/07 19:01

Kífinn

Afbragðslestur: Kjarnmikill texti og skilaboðin ekki síðri. Skál!
Hvar kom það fram í máli konungs Hvæsi?

2/11/07 19:01

Wayne Gretzky

[ Hlær]
Gott rit.

2/11/07 19:01

hlewagastiR

Hvæsi: Það er ekki hægt að keyra álver á dieselvélum. Eða jú, það er hægt, en það er ekki gert.

2/11/07 19:01

Einn gamall en nettur

Góður Offari! Verulega góður!

2/11/07 19:01

Furðuvera

Drukknaði... með tveimur káum.

2/11/07 19:01

Hexia de Trix

Flott Offi minn. [Gefur Offara brúsa með jólakakói]

2/11/07 19:01

Offari

[Drekkur jólakakóið] Takk.

2/11/07 19:01

Huxi

Góður pistill og mjög skemmtilegur. [Hlær og glottir á víxl]

2/11/07 19:02

Anna Panna

Þú ert nú meiri kallinn!

2/11/07 19:02

Garbo

Stórskemmtilegt!

2/11/07 19:02

Tigra

Hahaha... ég var næstum orðin brjáluð á meðferðinni á músinni.

2/11/07 20:00

Einstein

Þetta fannst mér fyndin saga. Skál fyrir þér Offari.

2/11/07 20:01

Bleiki ostaskerinn

Góður.

2/11/07 20:01

Jarmi

Öskrandi snilld! Eitthvað það besta sem frá þér hefur komið.

2/11/07 22:01

Dexxa

Snilld, þvílík snilld!!

2/11/07 23:01

Vladimir Fuckov

Skál ! Hugsanlega yðar besta fjelagsrit.

2/11/09 04:01

Sannleikurinn

Var músin Rannveig Rist?

Offari:
  • Fæðing hér: 9/10/05 11:53
  • Síðast á ferli: 23/5/23 07:34
  • Innlegg: 25412