Nær allt snýst um það sama hér
5.8.2004
Að undanförnu hefur nánast allt það efni er birst hefur hér í Nýjum félagsritum snúist um eina persónu og megnið af efninu hér verið frá þessari einu persónu, Omegaone. Finnst oss það almennt eigi eðlileg notkun á Nýjum félagsritum að sami gestur komi jafnvel oft á dag með efni þar.
Stór hluti þessa efnis Omegaone teljum vér að ætti frekar að birtast sem innlegg í þráðum ef það þarf endilega að birtast hér á Gestapó. Enn betra væri þó að það birtist alls ekki hér. Þar kemur tvennt til. Í fyrsta lagi hefur komið skýrt fram að það er eigi mikill áhugi á þessu efni hér. Í öðru lagi er efni þetta bæði mikið og langt og þess eðlis að það ætti miklu fremur heima á heimasíðu eða sem 'blogg'. Viljum vér hér með skora á viðkomandi að taka þá vinsamlegu ábendingu til athugunar. Afar einfalt er að koma upp heimasíðu eða bloggi (eins og eigi er ólíklegt að viðkomandi sé kunnugt).