Vér létum freistast
13.07.2004
Athygli vora hefur vakið að forsíða Gestapó er að fyllast af gagnrýni gesta á gagnrýni er áður hefur þar birst. Viljum vér gagnrýna þessa í flestum tilvikum sóun á plássi (og tíma þeirra er lesa Ný félagsrit) því gagnrýni á gagnrýni, sér í lagi ef hún snýst um gagnrýni á gagnrýni eða eitthvað þaðan ef lengra, er yfirleitt heldur innihaldslítil því yfirleitt stendur upphaflega gagnrýnin fyrir sínu. Auk þess má hverjum gesti vera ljóst hvað gerðist ef stór hluti gesta færi að gagnrýna gagnrýni og síðan yrði sú gagnrýni á gagnrýni gagnrýnd af stórum hluta gesta o.s.frv.
Í samræmi við þetta, og til að vera sjálfum oss samkvæmir, viljum vér hér með einnig gagrýna oss sjálfa harkalega fyrir að freistast til að taka þátt í því er vér erum hér að gagnrýna. Lofum vér að gera þetta aldrei, aldrei aftur (ef að líkum lætur).
Gagnrýni á gagnrýni (á gagnrýni...) fær því einungis eina stjörnu og er þessi gagnrýni vor þar meðtalin. Það sýnir síðan réttmæti stjörnugjafar vorrar að upphaflega gagnrýnin er kom þessu öllu af stað höfum vér gleymt hver var. Líklega þó veitingastaðagagnrýni frá Júlíu; slík gagnrýni fær yfirleitt mun meira en eina stjörnu hjá oss.