"Hvíldu þig, hvíld er góð"
07.07.2004 10:42
Hvaða morgunhressa músalemúrapa datt eiginlega upphaflega í hug að það væri góð hugmynd að nánast allt þjóðfélagið þyrfti að vakna á sama tíma ?? Nú er alkunna að það er einstaklingsbundið á hvaða tíma sólarhrings mismunandi einstaklingar eru best vakandi og stundum er jafnvel engu líkara en það breytist sem fall af tíma. Er þetta er skrifað virðist líkamsklukka vor t.d. af óþekktum ástæðum vera stödd í Austur-Kanada og hefur verið þar í 2-3 daga. Og hvað í örþreyttum öskurapa kemur það restinni af þjóðfélaginu við ? Nei, vér viljum taka undir sígilda gagnrýni Skammkels (sjá http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=595&n=378 ) og afnema morgna. Ef líkamsklukka vor þarf endilega að vera í Austur-Kanada viljum vér fá að hafa hana þar. Og hana nú !
Ein stjarna fyrir að núverandi fyrirkomulag kann á einhvern dularfullan hátt að vera þjóðhagslega hagkvæmt. Að öðru leyti mælum vér eigi með því.
(Vér vöknuðum nú reyndar aðeins við að semja þetta nöldur).