Hraðlestur að verða nauðsyn
01.07.2004
Erum það bara vér eða hefur innihaldslitlum innleggjum og tveggja manna þráðum stórfjölgað hér upp á síðkastið ? Þetta finnst oss eigi góð þróun þó almennt séu innlegg þessi meinlítil (þ.e. ekkert gelgjubull) því með sama áframhaldi verður brátt nauðsyn að beita hraðlestrartækni til að komast yfir það efni hér er vér teljum nauðsynlegt að komast yfir.
Sem betur fer hefur áhugaverðum innleggjum líklega eigi fækkað en það tekur sífellt lengri tíma að finna þau. Er þeirri leit e.t.v. best lýst með mjög frjálslegri umorðun á frasa úr Já ráðherra : "Vér verðum að lesa allt því ef vér lesum eigi allt er ómögulegt fyrir oss að vita hvað það er sem vér þurfum að lesa".