Nánast komið að því...
Það tilkynnist hjer með opinberlega að næsta hagyrðingamót verður haldið í kvöld kl. 22.
Yrkisefnin eru:
(1) Hefðbundin kynning og mont.
(2) Um meinta ofnotkun kláms í kveðskap. Ekki ætlað fyrir klámvísur nema e.t.v. eitthvað virkilega gott komi fram undir rós.
(3) Mútur og skjall.
(4) Vetrarkoman og snemmbúnar jólaauglýsingar.
(5) Af piparjúnkum og turtildúfum.
(6) Leyndó, verður tilkynnt í mótinu sjálfu.
Þeim er eigi þekkja til bendum vjer á eftirfarandi þráð:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=8080
Einnig má benda á þennan þráð:
Ég verð því miður ekki viðstaddur. En kveðskapurinn minn verður það vonandi, ég á aðeins eftir að slípa nokkrar vísur. Það fer eftir því hvern ég get platað til að vera málpípa mín.
Skál!
Ég verð því miður ekki viðstaddur. En kveðskapurinn minn verður það vonandi, ég á aðeins eftir að slípa nokkrar vísur. Það fer eftir því hvern ég get platað til að vera málpípa mín.
Skál!
Ég er að reyna að berja eitthvað saman, ég lofa engu um gæðin en ég geri ráð fyrir að mæta...
Anna, þetta voru góðar vísur hjá þér.
Og yrkiefnavalið fannst mér líka alveg fyrirtak.