Alveg að koma að því...
Það tilkynnist hjer með opinberlega að næsta hagyrðingamót verður haldið sunnudaginn 30. september kl. 22.
Yrkisefnin eru:
(1) Hefðbundin kynning og mont.
(2) Um meinta ofnotkun kláms í kveðskap. Ekki ætlað fyrir klámvísur nema e.t.v. eitthvað virkilega gott komi fram undir rós.
(3) Mútur og skjall.
(4) Vetrarkoman og snemmbúnar jólaauglýsingar.
(5) Af piparjúnkum og turtildúfum.
(6) Leyndó, verður tilkynnt í mótinu sjálfu.
Þeim er eigi þekkja til bendum vjer á eftirfarandi þráð:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=8080
Einnig má benda á þennan þráð:
Það gott er og gaman að ríma
og gæti það eflaust í síma
en bragar þarf bót
með baggalútsmót
því ég hef engan helvítis tíma