Röng tímasetning
02.05.2004
Það er alkunna að veturinn þarf eigi að vera slæmur árstími þrátt fyrir myrkur mestallan sólarhringinn í desember og janúar og oft á tíðum rysjótt veðurfar. Hann býður upp á ástundun ýmiskonar vetraríþrótta og í fögru veðri fylgir honum mikil náttúrufegurð. Hver hefur t.d. eigi dáðst að gulum, appelsínugulum og rauðum litbrigðum í snævi þaktri Esjunni í björtum vetrarstillum ?
Sá galli er hinsvegar við veturinn að hann á það til að koma á röngum árstíma og gerist það nú annað árið í röð að hann gerir sig heimankominn í maíbyrjun með tilheyrandi gróðurskemmdum, truflunum á fuglavarpi og hálku nú er bílar eru upp til hópa komnir á sumardekk. Svei ! Þessu getum vér eigi gefið svo mikið sem hálfa stjörnu þrátt fyrir góðan vilja.
PS Einhver böggur virðist í stjörnugjöfinni hér því núll stjörnur birtast sem ein stjarna. Höfum vér hér með kvartað formlega yfir því.