Enginn Baggalútur í sumar ?
26.04.2004
Vér erum farnir að hafa miklar áhyggjur af sumarfríi voru. Vandamálið er að eigi hefur verið upplýst hvernig sumarfríi Baggalúts verður háttað, þ.e. hvort það verði með svipuðum hætti og síðustu ár þannig að hann loki algjörlega eða hvort spjallsvæðið (Gestapó) verði e.t.v. opið. Slíkt virðist oss að gæti e.t.v. verið framkvæmanlegt þar eð hér eru friðargæsluliðar til að létta a.m.k. einhverju álagi af ritstjórn Baggalúts. Væri e.t.v. mögulegt að þeir leystu hvern annan af eftir þörfum í sumar svo einstök svæði verði aldrei án friðargæslu.
Ofangreind óvissa gerir oss illmögulegt að gera áætlanir varðandi sumarfrí vort því það segir sig sjálft að vér viljum vera í sumarfríi á *nákvæmlega* sama tíma og Baggalútur fari hann í frí. Bíðum vér spenntir mjög eftir nánari fregnum af þessu mjög svo mikilvæga máli.