Í síðasta fjelagsriti voru fórum vjer heldur háðuglegum orðum um hljómsveitina Kóbalt í formi dróttkvæðis. Virtist sem sakir innbyrðis misklíðar og óhóflegs stórmennskubrjálæðis einstakra meðlima hljómsveitarinnar yrði henni eigi mikið úr verki. Reyndist þetta algjörlega rangt og er oss því ljúft og skylt að birta hjer nýja útgáfu dróttkvæðis vors.
Baggabragur seggi
bætir, hressir, kætir.
Önnu söngur 'inni',
Ívar kjaft ei rífur.
Baggapó loks luku
Lútsins drykkjurútar.
Heillagripi hyllum
höfnum aldrei Galdra.
Drótt úr dýpi sóttum
dýrar kveðið skýrar.
Fagur finnst sá bragur
Fuckov hefur drukkið
Fá hann fagurbláan
finnst það best að sinni
Heyra munum meira
Mál fyr oss að SKÁLA!
Takk fyrir okkur