Þola eigi örbylgjur
10.04.2004
Nú á dögunum komumst vér fyrir tilviljun á snoðir um að hjá keisara vorum stæði til að koma fyrir öflugri sprengju í húsakynnum biskupsins í Baggalútíu. Þóttu oss aðgerðir þær allar bera vott um helst til mikinn ungæðishátt hjá annars ágætum keisara vorum. Ákváðum vér að meira gagn væri af því að koma fyrir hlerunartækjum hjá biskupnum í stað sprengju og gripum því lítillega inn í atburðarásina. Bæði var þetta til að komast að því hvort einhver hætta fylgdi því að hafa yfirlýstan stjórnarandstæðing í stöðu biskups og ekki síður til að komast að því hvort tengsl væru milli hans og To**s Cli****s, þ.e. hvort biskupinn hefði í reynd kveðið niður þennan draug eða hvort um samsæri væri að ræða.
Því miður mistókst þessi ráðagerð lítillega er hlerunartækið, er komið var fyrir í tebolla biskups, lenti inni í örbylgjuofni. Kom í ljós að það þolir eigi örbylgjur og sprakk það með hvelli miklum. Höfum vér þegar sent formlega kvörtun til framleiðanda og væntum viðbragða í formi endurbættra tækja.