Þetta er allt að koma
8.3.2004
Loksins er heimurinn kominn í samt lag eftir óþægilega daga í síðustu viku með heiftarlegum fráhvarfseinkennum. Eitt og annað er þó enn að pirra oss, innleggjafjöldi í listanum yfir heimavarnarliðið uppfærist eigi sama hvað á gengur og er það eigi nógu gott en vér lifum í voninni um að þetta komist í lag. Þá kemur eigi lengur fram á forsíðu Gestapó hver á nýjasta innlegg og hvenær. Það er þó er skömminni skárra en að þær upplýsingar séu rangar eins og var um tíma. Síðast en eigi síst er eigi mögulegt að komast í ný félagsrit gegnum listann ofarlega til hægri (Nýskráning - Heimavarnarlið - Félagsrit) hafi oss láðst að skrá oss inn áður.
En mikið er gott að þurfa eigi lengur að tvískrá sig inn.
Þrjár stjörnur fyrir að það er mestu máli skiptir virkar og að eigi þarf lengur að tvískrá sig. Stjörnurnar tvær er á vantar eru vegna bögga þeirra er nefndir voru hér að ofan.