Prófanirnar fóru aðeins úr böndunum
31.10.2003
Prófanir á geimskipi voru er fram fara í Kaliforníu virðast hafa farið örlítið úr böndunum. Í prófununum liggur "hreyfillinn" í lárjettri stöðu en eigi lóðrjettri. Vjer höfðum margbent þessum kjánaprikum er annast prófanirnar á að framkvæma þær eigi á svæði þar sem skóglendi væri í innan við 10 km fjarlægð eftir útblástursstefnunni. Allt kom fyrir ekki, þessir jólasveinar höfðu eigi meiri trú á afli geimskipsins en svo að þeir prófuðu það í innan við 3 km fjarlægð frá miklu skóglendi. Afleiðingarnar má núna sjá í fjölmiðlum þessa dagana - óþolandi að þurfa að vera með puttana á öllum smáatriðum þessa verkefnis vegna svona klúðurs en svona er víst lífið.
Sjá má mynd af þegar örlítil frumgerð hreyfilsins var prófuð fyrr í sumar hjer: http://www.spaceflightnow.com/news/n0310/24srbtest/srbtest2.jpg
[Stofnar einstaklega laumulegan laumupúkaþráð og hlær alveg þangað til Vladimir finnur hann]
Já ég held þú megir fá þann titil [Ljómar upp]
Þetta er svo laumulegur þráður að ekki einu sinni Vlad veit um hann... [hlær tryllingslega]
En það er ekkert laumulegt við þennan þráð... eruð þið ekki alltaf að skoða gömul félagsrit eins og ég?
[Horfir á Skabba]
Skoða..gömul fjélagsrit?
Ertu alveg frá þér?
Ég hélt að bara Nornin skoðaði gamla þræði.. en þú stundar það greinilega að skoða gömul félagsrit..
Auk þess sérðu það jafn vel og ég að Vlad hefur ekki uppgötvað þennan þráð ennþá.
Jæja... þá er kominn tími til að hlekkja sig við eitthvað hér [hlekkjar sig við ofn í horninu] Hér verð ég þar til búið er að ákveða að halda Gestapó opnu í sumar!
Ég er hér! [Ráfar um og drekkur blút]
[Ælir á félagsritið hans Vlad]
Úps.. fyrirgefðu Vlad..
Komin aftur.
Nú hlýtur Vladimir að fara að fatta þetta. Mér finnst hann ekki vera að standa sig í laumupúkinu [flissar]
VLAHAD! koma so... jæja, ætli það sé ekki best að laumupúkast aðeins meira [glottir við tönn og stelur fagurbláum drykk til að súpa á]
Jú jú.. það er örugglega best að laumast aðeins meira fyrst Vlad er ekki búinn að fatta.
Dúmdírúmm...
[Laumast til að pissa í eitt hornið á félagsritinu]
Vona að hann taki ekki eftir þessu!
[Nagar sig í handabökin]
Af hverju er maður ekki alltaf tilbúin að segja það sem manni liggur á hjarta?
Það er ekki þverfótað fyrir einhverjum laumupúkum! [Strunsar út af laumupúkasviðinu og skellir á eftir sér]
Alveg rétt. Hingað hef ég ætlað að kíkja lengi. Gaman að sjá að Vlad virðist enn ekki hafa uppgötvað þennan gríðarlega laumulega laumupúkaþráð.
Hefur annars einhver velt því fyrir sér hvort Vlad hafi séð þetta fyrir löngu án þess að skrifa nokkuð og sé hlæjandi að okkur?
Nú veit ég ekki. En hitt veit ég að Nornin hefur rétt fyrir sér. [Ljómar upp]. Mér finnst nú samt að ef hann vissi af þessu, þá mætti hann heilsa upp á okkur svona rétt fyrir lokun.
Nú er orðið enn flóknara en áður að komast hingað - nema einhver styttri-leið hafi farið framhjá mér?
Ef einhver veit um fljótlega leið hingað (aðra en að fletta gegnum elstu félagsritin) má sá hinn sami senda mér einkapóst. Og ég vil ekki heyra neitt um bókamerki í vafrann minn. [Fer í fýlu]
Settu bara alltaf sama hlekkinn í gluggann Hexía min. Það hlýtur að virka [Ljómar upp]
Félagsrit 42, skelfing er viðeigandi að hitta ykkur hér laumupúkar.
Hexia, ég mæli svo eindregið með því að þú prófir eftirfarandi hlekk, bara svona rétt til að hrista upp í fattaranum:
http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=90& amp;n=42-
Já þú segir nokkuð Glúmur.
Það er merkileg tilviljun að þetta skuli vera númer 42!
En nú eru tæpir 5 mánuðir sem við höfum verið að laumupúkast hérna og ennþá er enginn Vladimir mættur á svæðið. Les hann ekki sín eigin félagsrit maðurinn?
Vladimir mætir kannski á 6 mánaða afmæli laumupúkunar á þessum stað? Sem verður 15. október reiknist mér rétt til.
Ég á þó alvarlega erfitt með að trúa því að Vladimir viti ekki af þessu. Líklegast hefur hann fullkomnað laumupúkalistina og er orðinn með öllu ósjáanlegur þegar hann púkast.
Já það væri eftir honum.
En ég skála þá bara fyrir forseta vorum hér og nú, sá að hann var farinn að sötra kóbaltbláa sullið sitt á öðrum þræði.
Skál Vladimir, skál.
Þetta er stórmerkilegt. Nú er ég að velta fyrir mér hvort ég eigi að þora að segja húsbónda mínum og meistara frá þessu skúmaskoti.
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að oss er núna kunnugt um þennan laumupúkaþráð og erum vjer hissa. Þurfum vjer nú að velta því vel og vandlega fyrir oss hvort stofnandi þessa þráðar skuli tekinn í tölu erkilaumupúka.
Skál! [Sýpur á fagurgulum drykk] [Brosir út að eyrum til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið]
Og skemmtilegt að svo virðist sem þeir laumupúkar er virkastir voru hjer í byrjun hafi núna gleymt þessum þræði.
Já, það er skondið. En ég er nú bara nýkominn í hóp laumupúka svo hvað veit ég?! [Sýpur á fagurgrænum drykk núna]
Nei nei. Ekkert búin að gleyma þessu.
En þar sem þú (Vladimir) komst akkúrat á afmæli laumupúkunar hér, þá hef ég þig grunaðann um að hafa vitað af þessu. Enda fer fátt framhjá þínum vökulu augum [skálar]
Eigi höfðum vjer vitað af þessu lengi og vekur það spurningar um hæfni vora sem erkilaumupúka. Oss var tilkynnt um þetta í fyrsta sinn í lok september.
Þetta var samt góð hugmynd hjá henni Tigru okkar, að laumupúkast beint fyrir framan nefið á þér [Ljómar vegna þessarar hugdettu].
Hver er ekki laumupúki nú til dags? Það er allt morandi í laumurum á gervöllu gestapói.
Satt er það. Kannski það sé flottara í dag að vera ekki laumupúki?
Já og skál fyrir laugardagskvöldi.
Ja þeir sem "eru ekki laumupúkar" hafa kannski bara ekki verið gómaðir ennþá...
Kannski eru þeir að laumupúkast einhversstaðar annarsstaðar í internetinu
Uss, ljótt er það ef laumupúkun á sér stað annarsstaðar á veraldarvefnum. Við þurfum auðvitað að koma reglum yfir þetta fólk. Gengur ekki að láta það vafra stefnulaust um !
Mér sýnist þetta vera eitt af þessum gáfnaljósum sem fatta alltaf allt strax.
[Laumast inn, Laumast aðeins um, og laumast út aftur]
Þetta var bara skemmtilegt.
Heyrðu, komdu hingað aftur væni minn. Ég þarf aðeins að tala við þig.
.
.
SKÁL!
Vjer höfum ákveðið að verða fyrstir á þessu ári til að laumupúkast undir þessu fjelagsriti voru. Skál ! [Sýpur á fagurbláum nýársdrykk]
Skál Og gleðilegt nýtt ár! Ég fékk aldrei að segja það við ykkur kæru vinir.
Vjer erum hjer eingöngu til að athuga hvort hjer hafi nýlega sjest laumupúkar. Skál ! (ef hjer skyldu leynast laumupúkar) [Sýpur á fagurbláum laugardagskvölddrykk].
[Skálar innilega við háttvirtan forseta]
Hvenær munu svo næstu prófanir fara fram?
Hvar er, hvar er, hvar er, hvar er viskíflaskan? Viskíflaskan, viskíflaskan.
Hvar er, hvar er, hvar er, hvar er viskíflaskan? Hvar er hún núna?
Æjæjæ...
Til lukku með rafmælið Vladimir minn.
915 dagar til viðbótar verða örskotsstund að líða.
Skál fyrir þér!
[Mætir 'örlítið' of seint í eigin rafmælisveislu hjer á meðal laumupúka]
Skál !
[Sýpur á fagurbláum drykk]
Æ, ég missti af þessu, ég sem mætti svo snemma svo ég gæti komið þér á óvart... En jæja, til hamingju!
Síðbúin og þó ég segi sjálfur frá, afar skemmtileg rafmæliskveðja til forsetans. Hammó með rammó! [Skálar í kóbaltblandaða blöndu af vískí og ákavíti]
Ég er með. [Stekkur til og mætir í nýju skílunni sinni] Don De Speedo er mættur!
En hvar eru sólgleraugun mín?
Bara svo að þið vitið það að þá er ég að fara að deyja bráðum... Og síðan endurfæðist ég þúsundfalt nokkrum sekúndum síðar!!!!
+
Samt ekki strax.
Skál ! (enda nánast komin helgi). Það tilkynnist hjer með opinberlega að alltof langt er síðan vjer ljetum sjá oss hjer síðast.
Já það er líka langt síðan ég sást hér... hugsa að ég stundi bara laumupúkun í dag... öll þau skúmaskot sem ég finn...
Það tilkynnist hjer með opinberlega að eigi munum vjer aftur láta það framhjá oss fara í hálft ár að hjer sje laumupúka að finna. Skál ! [Sýpur á fagurglærum drykk]
Er Gvendur skrítni ekki búinn að laumupúkast hér?
[Hrökklast aftur á bak og hrasar á Vlad]
[Stekkur út úr runna]Supplies!!
Ég var bara að bíða eftir því að einhver myndi segja nafnið mitt [Glottir eins og fífl]
Skál ! Og velkominn.
Annars verðum vjer því miður að tilkynna að í augnablikinu er hættulegt að vera hjer og þeir laumupúkar er slíkt gera eru hjer á eigin ábyrgð. Það er nefnilega verið að prófa plútóníumknúið geimskip [Ræsir risastóra eldflaug].
Geimskipið reyndist virka ljómandi vel [Ljómar upp]. Hættan er liðin hjá, a.m.k. í bili.
Allt á að vera í lagi, auk þess fer fagurblár plútóníumljómi sumum eða jafnvel öllum gestum vel [Ljómar upp í fagurbláum bjarma frá nálægum plútóníumbirgðagámi. Heldur áfram að laumupúkast].
Nú, ef þetta er bara plútóníum hlýtur þetta að vera í lagi. [Fer inn í gáminn og kemur út sjálflýsandi]
[Tekur Dúdda með sér heim, kemur honum fyrir úti í horni og notar hann sem lesljós]
Ég vil þakka öllum fyrir árshátíðina [Ljómar upp]
Einnig vil ég mælast til að Hakuchi fari að gera við veðurvélina, mér leiðist snjór!
Vjer tökum undir óskir um viðgerðir á veðurvjelinni en teljum þó hugsanlegt að Hakuchi sje ókunnugt um þennan laumupúkaþráð. Skál !
Takk fyrir einstaklega gott laumupúka ár lömbin mín, farið varlega með flugeldana.
[Telur þræðina]
Þá held ég sé búin að koma við á öllum í dag. Best að taka aðra umferð til öryggis.
[Kvittar og fer]
Vjer lásum þetta fyrst sem Baggalútsapa. Rjett er að taka fram fyrir þá er láta sjer e.t.v. detta í hug að nota það orð að notkun þess jafngildir landráðum. Gleðilegt ár !
Það má nú segja. En það er mjög gott að forsetinn er augljóslega vel vakandi yfir velferð ríkisins.
[Hoppar af gleði að sjá Hexiu]
Hexia! Ertu búin að finna kvennalaumupúkaþráðinn ....
[Þagnar]
Alltof langt er síðan vjer höfum komið hingað. Skál ! [Setur geimskipið í tilraunaskyni í gang]
Iss. þetta geimskip er auðfundið... [Tekur upp rafhlöðuknúna geimskipafinnarann]
Já, ef þú ert að drekka kóbaltbættan fagurbláan drykk og ert búin að láta koma fyrir eldflaugahreyfli í rassinum á þér.
Eldsneytið fer þá niður vélindað og ofan í forhitunarofninn. Þaðan fer eldsneytið í andjónunarferli til að undirbúa afjónunina sem á sér stað í eldflaugahreyflinum sjálfum. Við afjónun andjónaðs kóbalteldsneytis leysist gífurleg orka úr læðingi sem ýtir viðkomandi aðila 10000 km upp í loftið.
Við þetta má bæta að með svona apparat innan í sér nægir að innbyrða einungis kóbalt til að halda í sér lífi. Hliðarverkanirnar eru augljósar en skemmtilegar.
Þetta er allt partur af planinu hjá okkur. Forsetinn mun án efa ekki lifa 10.000 km fallið af. [glottir og gerir evil-finger pyramid]
Ég held að það sé þegar maður lætur fingurna saman með hendurnar fyrir framan hökuna og trommar þeim létt saman, svona eins og vondi kallinn í bíómyndunum þegar hann er búinn að upphugsa eitthvað plan. [starir þegjandi út í loftið]
Þú heldur það já. Mér finnst það ósköp vinaleg staða, alls ekki ill eða óvinaleg.
Nei, detta mér nú allar dauðar sem lifandi. Hvæsi vaknaður.
[Telur þræðina hans Hvæsa í laumubókhaldinu]
Skál ! Líklega í síðasta sinn í þessu laumupúkaskúmaskoti fyrir sumarlokun [Þurrkar rykkorn úr augunum]
Greinilega. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk og fer og athugar með Leoncie]
Hér verður að koma við. Skál! Það vantar auðvitað alveg júlí- og ágústskál. Hefði farið svo ljómandi vel með mánaðastellinu.
[sullar bjór yfir allt og ropar] Ég vildi að mamma hefði alið mig betur upp. [biðst ekki afsökunar og veður aftur yfir þráðinn á skítugum skónum og fer]
Skál ! [Tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í neyslu fagurblárra drykkja]
Hvað gengur hér eiginlega á? [Reynir að þröngva sér í gegnum þráðinn] Djefull eru margir hérna!
Hrasar óvart inn í myrkt húsasund, og viti menn, laumupokasund !
[ljómar upp]
Þess ber þó að geta að eigi er það sama geimskipið sem vjer erum að prófa núna og árið 2003.
[Andar að sér eiturgufunum frá geimskipinu]
Aaahhh... Besti þráðurinn!
[Horfir stolt yfir afrek sitt]
Þarfi: Ætli það sé ekki farið í brotajárn og jafnvel partar úr því í nýja geimskipinu.
Húsasund? Laumupokasund? Er sundmót?
[Tekur 200 metra laumupúkasund á örskotsstund sléttri]
Tigra: Jú, partar úr því eru í nýja geimskipinu. Það (gamla geimskipið) sprakk reyndar óvart í loft upp en nokkrir hlutar þess voru nothæfir (og auk þess eftir það ljóst að þeir þola mikið álag).
Það tilkynnist hjer með opinberlega að sökum viðburðar á og/eða hjá NASA um næstu helgi verður geimskipið núna prófað. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk og kemur á bannsvæði með 25 km radíus].
Gleðilegan 9. mars!! Nú er ég farin að sofa og tilkynni óopinberlega að ég mun ekki ljúka þráðaumferð fyrr en síðar á þessum sólarhring.
Hann laumast þar líka og líka ég. Ég laumast alls staðar.
[Tekur nokkur dansspor]
Ég var að hugsa um það - en svo var ég bara nokkuð duglegur. En ég átti ekki að vísa í hlutverkapóstinn, því þar með var ég ekki lengur grunsamlegur, og því augljóst skotmark fyrir Þarfa. <Dæsir mæðulega og fiktar í geimskipinu>
Hvað ætli Upprifinn eigi við með opinber laumupúkaþráður ? [Klórar sjer í höfðinu]
Vampýruleðurblökur eru duglegar að pissa, var Bragi að segja rétt í þessu!
Það slær rauðum bjarma á himininn. Það erum líklegast við sem höfum laumað okkur inn fyrir dyrnar.
[Ljómar upp]
<Leggur við ankeri og spókar sig um>
<Heldur síðan strandsiglingum áfram...>
jájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájájá já
Þetta laumupúkastúss er orðið alltof mainstream eitthvað. Maður fer að hætta að nenna þessu (Hef reyndar ekki gert þetta í marga marga mánuði...).
[Ræsir geimskipið til prufu og reynist það virka. Ljómar upp og skreppur til tunglsins að leita að óvinum ríkisins]
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að nú hyggjumst vjer skreppa til Evrópu enda erum vjer að líkindum sendiherra þar [Ræsir geimskipið svo kröftuglega að rúmlega 1000 ferkílómetra svæði brennur til ösku].
Seiseijá, Evrópa segirðu. Er eitthvað eftir fyrir Heimsveldið að leggja undir sig þar?
Evrópa tilheyrir núna Baggalútíu. Einhverjar tillögur um hvert skuli halda næst ? [Býr sig undir að ræsa geimskipið]
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að rykstormurinn í Sydney er í þessu samhengi nokkuð grunsamlegur.
Jafnframt tilkynnist hjer með (ó)opinberlega að í dag er hátíðardagur laumupúka. Skál !
Nei hættið nú alveg. Hingað hefur ekki komið nokkur kjaftur í tæpa 10 mánuði. Ykkur er farið að förlast.
Já og mér líka.
Meira að segja Vlad er hættur að laumast á laumupúkadeginum (þó svo að hann muni enn eftir honum).
Laumupúkaleikurinn.
Blokkari mafíunnar er Þrask.
Ef þú. Þrask, sérð þennan póst og ert enn á lífi, máttu afrita hann og birta, og þá vinnur mafían.
Ef þú ert dauður og birtir þennan póst eða gefur í skyn tilvist hans, vinna þorpsbúar. Ef þú ert mafíósi en heitir ekki Þrask, gerirðu ekki annað en að koma upp um þig og félaga þinn ef þú birtir póstinn eða gefur hann í skyn.
Skemmtum okkur.
Eins og segir í upphafsinnlegginu, þetta er siðlaus leikur. Þó þátttakendum sé óheimlt að tala samn í einkaskilaboðum þá er þeim ekki bannað að tala saman á annan hátt, til dæmis hér.
Í dag fannst pláneta sem lýkist jörðinni að miklu leiti.
Það er því tímabært að beina geimiskipi þessa félagsrits að þessum verðandi nýju heimkynnum Gestapóa.
<Ljómar upp>
Ef ég skýt einn í dag, og við náum að hengja annan í kvöld, þá er bara að ná þeim þriðja á morgun eftir að ég verð næturdrepinn.
Hljómar eins og áætlun.
[Ljómar upp]
Sumir hafa mikið talað um að þeir séu búnir að mála á sig skotskífu. En kannski er best að taka hann á morgun. Þennan í dag og þá er bara einn eftir í sigtið núna.
Ég gæti líka komið út úr skápnum og verið næturdrepin og þú skotið eftirlifandi í fyrramálið.
3 verndarar? Ég hafi bara fundið upplýsingar um 2. Jæja. Það væri nú gott ef einhver rækist inn hjá mér, svo maður gæti komið út úr skápnum og klárað leikinn.
[dæs]
Nei, eins og þú veist núna reyndar. Allir maffar í þessum leik eru "ómyndarlegir".
[Blikkar]
[Les það sem er hjer ofan við og hrökklast afturábak og hrasar við]
Þetta var skemmtilega frumlegur vinkill á mafíuleik [Ljómar upp].
Það tilkynnist hjer með opinberlega að í dag er hátíðardagur laumupúka. Skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Nú er 9. mars 2018 kl. 22:25 og þar með hátíðardagur laumupúka þó dagsetningin við þessa athugasemd kunni að gefa annað til kynna enda allt sem tengist fjelagsritum þessa dagana undir áhrifum tímavjelar og/eða svarthols. Skál! [Sýpur á fagurbláum drykk].