Heimur versnandi fer
20.02.2004
Óvinir ríkisins hafa fært sig upp á skaftið að undanförnu og gerast sífellt ósvífnari í aðgerðum sínum. Grunur leikur á að þeir hafi rænt keisara Baggalútíu en eigi er ljóst nákvæmlega hver þeirra var að verki. Grunur beinist helst að Tony Clifton eða jafnvel Hafþóri Hübner en fleiri eru undir smásjá yfirvalda. Er ljóst að ríkisstjórn Baggalútíu má hvergi gefa eftir í baráttunni gegn niðurrifsöflum þeim er leynast í hverju horni og má vænta harðra gagnaðgerða á næstunni því engir aðilar eru jafn hættulegir og óvinir ríkisins.