Niðurstaða enn jafn óljós
18.02.2004 14:16
Á dauflegum degi gripum vér tækifærið og náðum í nýjan mælipunkt í yfirstandandi rannsóknum vorum á eftirsóknarleika þess að eiga nýjasta innlegg í öllum umræðuflokkum hér. Þessar nýju upplýsingar eru að því leyti dýrmætar að aldrei áður hefur einhver áður átt nýjasta innlegg í öllum efnisflokkum á nákvæmlega þessum tíma dags auk þess sem slíkt hefur aldrei áður gerst 18. febrúar.