Vjer vonum að eigi sje alveg augljóst um hvað er ort en vjer vonum að unnt sje að sjá um hvað er ort
Laumupúka sönnum sæmir
sjest oft bestu veigum hjá
orku gefur erkipúkum
eftir þráðum oft þeir laumast
Þýðverja svikasilfur var
sverti undir grundum huga
Nú í gleðskap glaðir vilja
gestir drykki þykkari
Þetta segir mér nú bara að það séu einhverjir laumupúkar að hittast á tilteknum svæðum, sem öðrum eru hulin. Nægir þar að nefna Næturgöltinn, sem virðist opinn á daginn fyrir suma. Fyrst ég fæ ekki að vera með er ég á móti öllum slíkum leynisamkomum.
Kvæðið er engu að síður ágætt.
Eigi er hjer ort um ósýnileg svæði enda þau eigi til fyrir utan Næturgöltinn sem stórskemmtilegt er að brjótast inn í að deginum [Ljómar upp].
Svo er oss núna orðið ljóst að endurbæta má kveðskapinn og hefði það betur gerst fyrr. Er því álitamál hvort unnt sje að nota orðið ágætt [Íhugar að birta endurbætta útgáfu síðar].
Það er óþarfi að gera lítið úr kveðskapnum, sem er mjög í anda Hávamála og fleiri stórverka.
Mér léttir samt við að lesa að ekki séu til nein ósýnileg svæði. Hyggst ég nú leita leiða til að komast inná Næturgöltinn utan opnunartíma.
Eitthvað hlítur þettað að hafa gera með Ralf Bílstjórann að gera hann kanski er ekki allur þar sem hann er séður.
.
.
.
Erkilaumupúka plott
passa verður betur
„baulu-reka" prívat pott
pent, þau ekki í setur
.
Laumupúka list er mest
Læðast hljótt í næði
dylst sá kóni, kóngi og gest
klár á alla þræði.
Þetta er stórskemmtilegt, svo virðist sem vjer höfum óvart búið til vísnagátu [Ljómar upp og veltir fyrir sjer hvort vísnagátur hafi áður orðið til óvart hjer].
Eigi gefum vjer frekari vísbendingar í bili. Vjer höfum nefnilega komist að því að eigi er hjer nógu vel ort og hyggjumst vjer brátt birta mikið endurbætta útgáfu ásamt vísbendingum ef á þarf að halda. Þangað til það gerist verða gestir hjer að lifa í nagandi óvissu um hvað ort sje um og mega getgátur um það að sjálfsögðu koma hjer.