Lífshættulegar aðstæður
Hálka sú er nú hefur lagst yfir mestallt landið er augljóslega til hinnar mestu óþurftar, veldur slysum, töfum og ýmiskonar óáran. Snjórinn er eigi mikið betri, þó er eigi hægt að gagnrýna þó eitthvað leynist af honum uppi á fjöllum, á hálendinu svo og þeim skíðasvæðum er eigi eru í þéttbýli. Er þetta ástæða þess að fjöldi stjarna er 1 en eigi 0.
Í framhaldi af þessu leggjum vér til að ríkisstjórn Baggalútíu banni hálku og snjó í þéttbýli og komi upp viðamiklu kerfi eftirlitsmyndavéla til að tryggt sé að banninu verði framfylgt. Jafnframt verði kóbaltvinnsla stóraukin í þeim tilgangi m.a. að fá orkugjafa til að nota við snjó- og ísbræðslu.
Vér höfum hér með ákveðið að stofna hér hinn fullkomna laumupúkaþráð (ef unnt er að nefna svona nokkuð þráð).
Verður fróðlegt að sjá hve langur tími líður þar til einhver finnur þetta.
Skál !
Aha...fann hann hehe... þú ert greinilega akkúrat tveimur vikum á undan mér í hugdettum...
Skál
Já, oss minnir það. Vjer munum a.m.k. að oss datt þetta í hug fyrstum Bagglýtinga (nema einhver hafi verið á undan og haldið því leyndu allan þennan tíma) og oss minnir að þessi 'þráður' sje fyrsti afrakstur þeirrar hugmyndar.
Hvort Hilmar var rétt á undan eða rétt á eftir man ég ekki... maður ætti kannske að kanna málið?
Vjer vorum á undan, sbr. það sem fram kemur ofarlega í aðal fjelagsritalaumupúkaþræðinum.
Vjer gægjumst hjer inn í þennan laumupúkaþráð því það rann allt í einu upp fyrir oss að efni fjelagsrits þess er þráður þessi tilheyrir á nokkuð vel við þessa dagana. Skál !
[Verður fyrstur til að skála á fyrsta laumupúkaþræðinum]
Voðalega er rólegt hér. [Sest niður]
Daginn púkar, það tilkynnist hér með laumuberlega að ég mun í dag stofna nýjan laumupúkaþráð... og hugsanlega úrvelja hann líka.
Góðan og blessaðan daginn.... Það tilkynnist hér með, sökum vöntunar á ártölum í dagsetningunum, að þetta er skrifað á því herrans ári 2006.
Enter er búinn að laga þann galla en samt er líklega nauðsyn að hafa svona ártalatilkynningar inn á milli ef árið týnist einhverntíma aftur.
Ég er búinn að gleyma hvar nýi laumupúkaþráðurinn var [Brestur í óstöðvandi grát].
Ég er ekki búin að finna hann ennþá. Held ég... [Brestur í óstöðvandi grát]
Og ég get ekki ennþá munað þetta, á ekki einhver rautt eðalginseng eða eitthvað sem bætir upp á minnið?
Ok, ef ég þekki mig rétt þá hef ég sett þetta í eitthvað obskjúr félagsrit frá einhverjum obskjúr notanda. Gamalt en ekki OF gamalt, þekktur en ekki OF þekktur - 29.maí það er lykillinn!
Ætli það sé ekki hægt að fá kústaskáp eða geymslu lánaða fyrir svoleiðis á Litla Ljóta?
Það er einmitt það sem vjer höfum verið að spyrja um í ýmsum laumupúkaþráðum en án skýrra svara. Það var afbragðs laumupúkaskúmaskot á síðustu árshátíð (þ.e. 2005 fyrir þá er lesa þetta eftir 11. nóvember 2006). En auðvitað væri stór skápur enn betri.
Vjer gægjumst hjer inn til að kvarta formlega undan seinagangi við setningu laga um bann við hálku og snjó. Einkum hefur ástandið verið slæmt á gangstjettum.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að hafi fram að þessum degi ei verið algjörlega augljóst að banna beri hálku og snjó með lögum þá er það a.m.k. orðið augljóst núna.
Gott að vera með þessa tilkynningu hér. Þetta er einmitt rétti staðurinn fyrir hana.
[skálar]
Það er greinilega eitthvað að gerast í þessu hálku-/snjómálum, það eru einungis nokkrir hálkublettir eftir hér og þar.
Mér finnst óþarflega blautt þessa dagana. Er þó sátt við hitastigið í augnablikinu.
Ég vil snjó og frost og sól og logn! Þá kemst ég í vetrarmyndatökuferð... [Grenjar]
Það tilkynnist hjer með opinberlega að jeg rita að hætti forsetans í tilefni rafmælis hans og óska honum laumulega til hamingju með daginn og fagna því að ekki er #*%&{$€@ hálka og snjór á þessum degi.
Stilling veðurvélarinnar hefur verið mér að skapi í dag. Sól skein og úti var líkast vori.
Það var fullt af skrautlegu veðurfari í dag og ég tók myndir fyrir efasemdarmann frá útlöndum því til sönnunar.
Nú er allt orðið ská- og feitletrað. Gaman að því.
[Sýpur á heiðgulu asnahanastéli]
Ég er ekki alveg sátt við það snjói í dag og komið langt fram í apríl.
[Hryllir sig]
Nei heyrðu, ekki er maður að fara að koma heim á skerið til þess að taka á móti eintómum norðanhryssingi og slyddu í fangið?? [fer og leitar að veðurvélinni]
[Hellir "óvart" asnahanastéli forsetans niður]
Æ, æ. Jæja hann fær sér bara nýtt þegar hann kemur aftur.
Langt síðan ég hef kíkt hingað inn. Þetta mun hins vegar vera fyrsta laum vetrarins á þessum vettvangi! [Ljómar upp]
Ég stefni á að klára eina umferð í kvöld, en ekki endilega kvitta á öllum þráðum.
Þeim laumupúkum til fróðleiks er eigi þekkja alla laumupúkunarsögu Gestapósins frá upphafi bendum vjer á að þetta mun vera fyrsti laumupúkaþráður þessarar tegundar. Vilji svo ólíklega til að annar eldri sje til einhversstaðar er þar sannkallaður erkilaumupúki á ferðinni - laumupúki er tekist hefur að fela sig í nær þrjú ár.
Æ, verð ég nú að fara að skoða dagsetningar líka. Geymi það samt fram í næstu umferð.
[Tilnefnir þráðinn til heimsminja]
[Er afar fegin að hvurslags skaut tappa úr flösku en skeit honum ekki úr flöskunni]
Núna er #*%&{$€@ hálka og snjór. Að vísu er hálkan ekkert stórkostleg og í augnablikinu kann ég vel við snjóinn sem lýsir aðeins upp skammdegið. En þessi eilífi #*%&{$€@ næðingur.
Merkilegt er annars að vissir laumupúkar skuli ekki vita um ljósaskiptin [Laumupúkast út].
Mér finnst of kalt miðað við vor og komandi sumar. Hvar er Hakuchi eiginlega og hefur Huxi enga stjórn á þessum mótorfák?
Það er nú ekki #*%&{$€@ hálkunni og snjónum að fyrir að fara núna.
[Ljómar upp]
mmm.. fagrar minningar hrannast upp, hálka og snjór...
*laumupúkast og horfir vongóð út um gluggann*
Þrátt fyrir kulda í mars sl. verðum vjer samt að upplýsa að vjer erum ánægðir með tíðarfarið það sem af er hausti.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að nú er orðið snjólítið mjög. Skál fyrir Lútsins laumupúkum ! [Sýpur á fagurbláum drykk]
Já, skál!
[Lyftir glasi]
Alveg að verða snjólaust. Hvað eru páskahretin mörg?
Og nú er aftur að verða snjólaust eftir að snjór kom í kjölfar þess að næstum því varð snjólaust í kjölfarið á snjó sem kom í framhaldi af snjóleysi. Vjer spáum að aftur muni snjóa fyrir lok ársins. Skál !
Ég legg fram drög að tillögu þess efnis að eftirlitsmyndavélarnar verði talandi myndavélar og geti talað hvor við aðra.
Þær mega ekki vera einmana. Svo verður hægt að koma fyrir búnaði þannig að hægt sé að fylgjast með hugsunum þeirra svo að þær tali skikkanlega og þvaðri ekki einhverja þvælu á meðann verið er að mæla snjóinn og hálkuna.
Þöglum eftirlitsmyndavélum hlýtur að líða alveg hræðilega illa.