Hvaða máritaníska mannætumúrmeldýr stal Gestapófíkn vorri ? Viðkomandi er beðin(n) að skila henni strax !
Nú snúum vjer aftur eftir langa lokun Gestapó er stafað mun hafa af samræmdum, svívirðilegum aðgerðum á vegum óvina baggalútíska heimsveldisins. Í kjölfarið á lokuninni fylgdi vel heppnuð leynileg ferð vor út á land til hernaðaraðgerða gegn umræddum óvinum. En nú við heimkomuna verðum vjer þess varir að upp er komið alvarlegt og nýstárlegt vandamál sökum þessa langa Gestapóleysis, vandamál er aldrei hefur komið upp áður: Baggalútsfíkn vor er nánast horfin. Eigi höfum vjer fundið fyrir fráhvarfseinkennum að undanförnu og eigi haft sterklega á tilfinningunni að eitthvað vantaði. Þó skömm sje frá að segja (og ættu svona orð eiginlega að varða við stjórnarskrá Baggalútíu og teljast til landráða) hefur hugurinn verið einhversstaðar annarsstaðar en á Gestapó. Óheimilt er þó með öllu að skýra frá hvar hugur vor hefur verið enda gætu óvinir ríkisins haft gagn af slíkum upplýsingum. En ljóst má vera að hjer er á ferðinni hið alvarlegasta vandamál.
Íhugum vjer nú hvað sje til ráða og veltum því í fyrsta sinn í alvöru fyrir oss að eta fagurbláa kóbaltmolann er Hóras afhenti oss á árshátíðinni í júní til að athuga hvort fíknin snúi þá samstundis aftur. Þessu til viðbótar hefur útlit Gestapó breyst nokkuð, mest til betri vegar, og svo margir nýir gestir eru hjer er vjer eigi þekkjum að engu er líkara en heil öld hafi liðið. Hvarflar m.a.s. að oss að tímavjel vor hafi loksins virkað og þá óvart og án þess að vjer yrðum þess strax varir. Hvaða ár er núna ? Hvað eigum vjer að gera sökum óvenju lítillar Gestapófíknar ? Hefur eitthvað merkilegt gerst eftir lokun ? Horfir ráðvilltur og ringlaður í kringum sig á nýja gesti, nýtt útlit og nýja þræði
Helvítis krækiberin, þetta er allt þeim að kenna! Ég vissi það allan tímann að þetta væri alvarlega skaðlegt!
[Slær Vladimir ítrekað utanundir]
EKKI FARA Í BERJAMÓ!!
Ekkert markvert hefur gerst held jeg. Nema þá að Ákavíti er en jafn gott og það hefur alltaf verið. Væri kanski ráð að skella í sig góðum slurk til að viðhalda fíkninni og liðka pennann eftir langt og erfitt sumar.
Gleðilegt ár...
Hvaða ár er núna ? 2051
Hvað eigum vjer að gera sökum óvenju lítillar Gestapófíknar ? Hætta að drekka.
Hefur eitthvað merkilegt gerst eftir lokun ? Nei.
Þessi áhyggjufulli sjúkdómur virðist herja á fleiri en þig kæri Vladimir.
Ég kem reyndar daglega, en aðallega til að fá fíknina til baka. Finna innspýtingu forvitni og fá brosið til að ljóma upp eins og áður, en ekkert gerist.
Ég hef verið í 16 klukkustundir í röð án þess svo mikið sem að hugsa til Gestapós.
Þetta er ógnvænleg þróun.
Kannski er það sumarið sem hefur þessi áhrif. Ég geri ráð fyrir að þetta lagist þegar ritstjórn kemur úr fríi og venjubundið líf tekur við af slökun og alls kyns sukki.
Það hlutu að vera helvítis krækiberin sem ég át á Barðaströndinni, gat bara ekki verið vegna neikvæðra fráhvarfseinkenna, því ég hef lesið slembiútgáfu ríkisfjölmiðilsins reglulega allt fríið. Tel mig geta sem sagt geta skrifað berjaskituna síðustu þrjá dagana á þessi árans krækiber þó það sé líka jafn langur tími síðan ég gekk í Gestapó. Mikið hlakkar mig og mína til morgundagsins þegar Mekka opnar að fullu eftir fríið.
Kæri Vladimir, það er nóg að stara á kóbalt molana í nokkrar sekundur á hverjum morgni. Fíknin ætti að skila sér með haustinu
Svo er líka mjög gott að skela sér á Alice Cooper tónleika. Þá getur maður ekki beðið eftir því að skrifa um þá á Gestapó
Ég gæti barasta hugsað mér að ljóma upp
Minn kæri Vladimir!
Hvað svo sem það er, þá ert þú ekki einn í þjáningunni.
Ég hef undanfarna daga hangið við tölvuna mína og dundað mér við lestur vefsíðna ellegar leikið mér í tilgangslausum leikjum. En ekki nema þrisvar sinnum hefur það hvarflað að mér að opna dyrnar sem liggja að Gestapó og í öll skiptin leið mér eins og þér. Þetta er yfirþyrmandi, óþolandi og hugsanlega smitandi. Við þurfum að fara að öllu með gát.
Vonandi lagast þetta með haustinu. Jafnvel strax í byrjun september, þegar íslensku sumri lýkur opinberlega.
Við skulum ekki gefa upp alla von enn, bíðum að minnsta kosti fram yfir allraheilagramessu [Hryllir sig]
Þetta virðist vera algengt vandamál. Ég held að hér sé því aðallega um að kenna, að við verðum að venjast því að stunda Gestapó að nýju. Ég finn sjálfur að þótt fíknin hafi verið lítil í upphafi, þá stigmagnast hún dag frá degi. Innan skamms verður hún án efa búin að ná því stigi að ég sit límdur við tölvuna öllum stundum, ýtandi á F5 á síðunni 'Hvað er nýtt?' sem óður maður, örvæntingarfullur yfir þeim möguleika að missa kannski af einhverju sem hér fer fram.
Fíknin er að koma, Enter. Ég finn það ... ég finn það. Hættu Enter ... ég er hræddur.
Ég kann gott ráð... 8 lítrar af kóki, bland í poka fyrir 500 kr., 3 snakkpokar og ídýfur, joggingbuxur, stuttermabolur og þykkar gardínur... uppskriftin að því hvernig maður lokar sig af til að gestapóast á ný!
Það þarf a.m.k. að stytta þau, fríið núna (2006) var um tvöfalt lengra en fríið 2005 sem er það frí er fjelagsritið snerist um.
Gömul saga og ný, það er þetta með öryggistilfinninguna í því sem maður þekkir.
[Spekingsleg]