Nú skulu óvinir hins baggalútíska heimsveldis fá að kenna á því
Að undanförnu hafa óvinir ríkisins haft sig óvenju mikið í frammi. Vísast þar til meðferðar þeirrar er keisarinn hefur mátt sæta af hálfu skottulæknis á þeirra vegum (sjá nýjasta fjelagsrit keisarans) en miklu fleiri alvarleg dæmi má nefna.
Í mars voru gerðar sýklavopnaárásir á forsetahöll Baggalútíu með tveggja vikna millibili. Sýklavarnir hallarinnar stóðust sem betur fer að mestu álagið en þó fengum vjer í kjölfar árásanna verstu kvefpest þessarar aldar og höfum vjer enn eigi náð oss alveg (örlítill hósti er enn eftir). Um svipað leyti var gerð efnavopnaárás á konungshöllina með torkennilegu ofskynjunarlyfi. Voru sýnilegustu áhrif þess undarleg hegðun drottningar Baggalútíu er sendi frá sjer falska, opinbera yfirlýsingu þess efnis að hún væri gestur (~*Gelgjan*~) er af og til hefur hrellt aðra gesti hjer undanfarnar vikur með and-baggalútískri framkomu.
Mun alvarlegri eru þó mannrán á vegum þessara skúrka. Talsvert hefur verið um að Bagglýtingar hverfi, sumir að því er virðist fyrir fullt og allt, sumir eru horfnir en munu væntanlega snúa aftur og sumir hafa horfið en snúið aftur í misjöfnu ástandi, allt frá eðlilegu ástandi yfir í óeðlilegt (sbr. keisarann).
Ljóst er að við þetta verður eigi unað lengur. Hyggst leyniþjónusta forsetaembættis Baggalútíu því innan skamms grípa til harðra og miskunnarlausra aðgerða gegn óvinum þessum og felast þær einkum í því að leggja þekkt aðsetur þeirra erlendis í rúst. Munum vjer í því skyni hverfa hjeðan fyrir fullt og allt seint í þessari viku og eigi snúa aftur fyrr en um næstu mánaðamót.
Lifi sannleikurinn !
Vér treystum yður fullkomlega til að jarða óvini vora og eyða þeim algerlega í eitt skipti fyrir öll. Munu þér því standa til boða stórkostlegar fjárveitingar frá Landbúnaðarráðuneytinu til að fjármagna þessar aðgerðir.
Skál!
Heyrðu, geturðu keypt líter af Camparí fyrir mig í fríhöfninni - já og karton af Capri? Bara þetta venjulega.
Capri?!?
Hvernig gengur annars hormónameðferðin Enter minn? Já, og hvenær ferðu í kynskiptiaðgerðina?
Það tekur því nú ekki að vera að splæsa í svoleiðis vitleysu. Ekki meðan ég hef þig.
Gangi þér vel Vladimir... það er engum betur treystandi í þetta verk, en vonandi kemstu aðeins á Gestapó í þessari ferð svo við fáum að frétta af þér...
Enter: Því miður eru svona stórir hlutir eigi til sölu í fríhöfninni svo oss sje kunnugt en gaman væri að innlima eyland þetta í Baggalútíu [Ljómar upp].
Varðandi fjárveitingar frá Landbúnaðarráðuneytinu - jú, líklega er rjett að vjer sljettum yfir sprengigígana og ræktum á þeim fagurgræna akra. Það verður eflaust rándýr framkvæmd.
Einhvur jeús sagði firir laungu að keisarinn ætti að fá það sem keisarinum tilhheyrði, fór út á sjó labbaði þar ánþess að bleyta tærnar og plataði helling að fólki að þau skildu södd verða á nokkrum síldum og fáeinum fransbrauðum