Félagsrit vort í gær um menninguna á Gestapó vakti skiljanlega nokkur viðbrögð og er full þörf á að skýra málið aðeins varðandi viss atriði. Því er rétt að taka eftirfarandi skýrt fram:
(1) Um skoðanir vorar og tillögur var að ræða til að fá umræðu, m.a. til að hugsanlega kæmi í ljós hvort stór meirihluti væri sammála eða ósammála vissum atriðum. Vér ráðum að sjálfsögðu engu einir um hvort eitthvað af því er vér nefndum gerist eður ei og ekki heldur einhver hópur gesta. Einungis ritstjórn Baggalúts hefur hér öll völd.
(2) Vér sjáum núna að orðin Þetta getur einnig breytt hittingum þannig að sé 'ójöfn dreifing' í mætingu getur verið að aðallega mæti stór hópur er þekkst hefur lengi utan Gestapó í pistlingnum geta hugsanlega misskilist á vægast sagt óheppilegan hátt [Verður skömmustulegur]. Vér viljum því taka skýrt fram að vér vorum einungis að benda á ákveðna breytingu er gæti orðið. Að þetta gerist skiptir hinsvegar litlu máli sé um skemmtilegt fólk að ræða. Vér höfum hitt hluta umrædds hóps og höfum ekki undan neinu að kvarta. Hafi einhver tekið þetta til sín á neikvæðan hátt biðjumst vér afsökunar.
(3) Athugasemd vorri um fjölda norna var eigi beint gegn neinum ákveðnum gesti og þá sér í lagi ekki Norninni (með stóru N) er var ef vér munum rétt fyrsta nornin hér og á því síst allra að taka umrædd orð til sín. Vér vorum fyrst og fremst að hugsa upphátt um ákveðna þróun varðandi alteregó og segja að oss finnst fjölbreytni og jafnvel 'fáránleiki/hugmyndaflug' í alteregóum skemmtilegt. Hér er hinsvegar ekki um stórmál að ræða.
(4) Eigi vorum vér að leggja til að einhverjum þráðum yrði hent eða að einhverjir ákveðnir þræðir yrðu ritskoðaðir sérstaklega. Vér vorum einungis að láta í ljós þá skoðun að 'svipaðir' þræðir eigi að vera á sama umræðusvæði, e.t.v. með því að færa einhverja þræði milli svæða.
Lifi sannleikurinn - skál ! [Sýpur á fagurbláum drykk og býður öllum viðstöddum drykki]
ég biðst hér með afsökunar á ófrumleik mínum og skorti á hugarflugi *sendir vladimir kláðaára og stóra bólu á rassinn*
[Bölvar lítilsháttar kláða á ónefndum stað. Veltir fyrir sér hvers vegna þurfti 20 sinnum meira ný-últrakóbaltsduft en eðlilegt er til að fá einhvern - en þó eigi alveg fullkominn - bata]
ég býð þér frítt í fyrsta tímann í heilsusetrinu mínu vladimir minn, það ætti að slá á mesta kláðann. lofa samt engu. veit ekki hvernig últrakóbaltduftið fer með andleysisleðjuna
Vér þiggjum boðið varðandi heilsusetrið en kysum að fleiri frá forsetaembættinu fengju að koma líka. Vonum vér að þessari frumlegu (ófrumlegu ?) deilu okkar sé þar með lokið.
[Veltir fyrir sér hvort útkoman úr því að blanda kóbalti við andleysisleðju verði tóm steypa]
Skál !
Þakka þér fyrir Vladimir... mér sárnaði ögn (eins og fleirum) en hef nú tekið gleði mína á ný.
skál! auðvitað er öllum hjá forsætisráðherraembættinu boðið! við gætum farið í hinn ágætasta leðjuslag