Þetta er komið í tísku hér svo vér neyðumst víst til að gera það líka
Það virðist komið í tísku hér að krækja í baunir með kveðskap um baunir og eru sumir þeir er það gera með réttu eða röngu sakaðir um leti og að krækja sér í baunir með lítilli fyrirhöfn. Ákváðum vér að gera þetta líka og nota hér hálfgerðan leirburð og bull til að fjölga baunum vorum. Eigi er þó þörf slíkrar fjölgunar hjá oss og væru einhverjar af baunum vorum til sölu (á okurverði) væri slík sala framkvæmanleg með góðu móti.
Vísnabaunir vondar þykja
verr'en daunill mykja
Mörgum valda miklum raunum
Mér þær skila baunalaunum
Lasta gestir letibaun
Ljóðið veldur raun
margra við kemur kaun
en kær eru baunalaun
Fáum baunir fyrir slikk
fjöldann laun vor gera klikk
Frekar baun en blikk-
belju, raun er mykja þykk
Klikk vér gerum gesti
gaman er af baun
Drykk vill dam'á hesti
daman sú fær laun
Jú, það virðist til siðs að dæma félagsrit eftir línufjölda en ekki innihaldi... sem er miður, flott hjá þér Vlad...