Breyting á stafsetningu
16.11.2003
Eftir mikla yfirlegu og vangaveltur höfum vjer með miklum semingi tekið þá tímamótaákvörðun að hætta að skrifa "je" í stað "é". Ákvörðunin var vissulega erfið en eins og öllum má vera ljóst fer magn efnis hjer á Baggalúti stöðugt vaxandi og allt þetta kallar að sjálfsögðu á geymslupláss (fleiri og stærri harða diska o.s.frv. og svo ætlum vjer rjett að vona að til sje öryggisafrit af því er hjer fer fram). Höfum vjer því ákveðið að leggja dálítið af mörkum til að minnka geymslupláss það er skrif vor taka með þessu því við að skrifa "é" í stað "je" sparast eitt bæti í hvert sinn sem það er gert og e.t.v. meira sje efnið geymt á fleiri en einum stað. Að auki minnkar örlítið það magn gagna er flæða um svonefnt Internet. Tekur þessi tímamótaákvörðun hér (!) með gildi. Í þessu sambandi minnum vér (!) einnig á að þeir Baggalútsmenn eiga það til að hrekkja gesti hér (!) með því að breyta "hug.sanlega" (fellið út punktinn) í "huxanlega" er textinn er birtur án þess að breyta þó textanum sjálfum. Ýmislegt fleira var gert á þýskum dögum fyrir nokkrum vikum. Yrðum vér (!) því ólýsanlega þakklátir ef hjá oss yrði hægt að breyta "é" í "je" við birtingu texta án þess að breyta upprunalega textanum.
Látum vér (!) þessu dagbókarbroti hér (!) með lokið og vonum að ákvörðun vor falli almennt eigi í grýttan jarðveg.
Skrítið að ég skuli ekki hafa vitað af þessum þræði fyrr [Klórar sér í höfðinu]
Úff, ég er að hugsa um að laumupúkast eingöngu í dag, ástandið þarna frammi er skelfilegt...
Það er voðalega lítið um að vera á þessum laugardegi, svo það er best að laumupúkast.
Hey, ég stofnaði þennan laumupúkaþráð fyrir næstum ári síðan.
<Ljómar upp>
Skál allir.
Ég hef fundið nokkra af þínum laumuþráðum Hvæsi og virðist þú lítið hugsa um þá, sumir verulega rykfallnir.
Þeir eru of margir til að muna, það verður að gera þetta skipulega.
[Skipuleggur og merkir við]
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer höfum rekist á laumupúkaþráð þenna.
Það tilkynnist hjer með óopinberlega að jeg hef komið hjer við á laumupúkadeginum.