Það tekur því líklega eigi heldur að gera ekkert af viti
16.11.2003
Eigi alls fyrir löngu sendum vjer eftirfarandi fyrirspurn til spekinganna hjá Baggalúti:
"Hvenær er svo stutt eftir af vinnuvikunni að eigi taki því lengur að reyna að gera eitthvað af viti ? Nú [fimmtudag] er einungis um þriðjungur eftir og varla að taki því að gera neitt. En í gær var enn styttri tími í að sá tími (sem líklega er núna) kæmi að eigi tæki því að gera neitt þannig að í gær tók því eigi heldur að gera neitt. Og í fyrradag var jafn stutt í gærdaginn og á mánudag í þriðjudaginn þannig að hvorki þá, á þriðjudag nje í gær tók því að gera neitt. Og þannig endalaust. ARRRGGGHHHH !!!!"
Þetta var skrifað á fimmtudegi. Eitthvað vafðist þetta mikla vandamál fyrir þeim Baggalútsmönnum og var þessu eigi svarað og er það kannski eigi að undra sje mið tekið af þeirri orrahríð misgáfulegra erinda er þeim berst.
Nú rann það upp fyrir oss upp úr hádegi í gær laugardag að þá var álíka stutt eftir af helginni og var af vinnuvikunni á fimmtudag (vjer teljum eigi aðfaranótt mánudags til helgarinnar). Var því ljóst að eigi tók því lengur að liggja í leti í helgarfríi og gera ekkert af viti. Var því þegar í stað haldið til vinnu og unnið vel og mikið en eigi mjög lengi enda miklu betra næði um kvöld og helgar. Að lokum var þó ljóst að það tók þessu eiginlega eigi, verkinu er þurfti að vinna lokið og ljóst að eigi færum vjer að rjúfa helgi hvíldardagsins með því að vinna þá líka. Var því helgafríi haldið áfram þó það tæki því eiginlega eigi enda laugardagur að kveldi kominn.
Virðist því ljóst að á virkum dögum tekur því eigi að reyna að gera neitt af viti vegna nálægðar við helgina og um helgar tekur því eigi að gera neitt sem eigi er af neinu viti vegna nálægðar við mánudag.
Er því ljóst að vjer stöndum hjer frammi fyrir áhugaverðu og mótsagnakenndu vandamáli er brýna nauðsyn ber til að finna lausn á.
Þess ber að lokum að geta að við fyrirspurn þeirri er birtist ofarlega í pistlingi þessum fengum var hjálplegt svar frá einum gesta GESTAPÓ og kunnum vjer viðkomandi bestu þakkir fyrir. Tökum vjer oss það bessaleyfi að birta það hjer:
"Á mínum námsárum í Árósum hitti ég fyrir tvo þarlenda undirverktakar hjá fyrirtæki sem tók að sér smíði ýmisskonar. En þeir höfðu velt sömu spurningu fyrir sér og þeirra svar fólst í að breyta sinni viðveru. Fyrst byrjuðu þeir á því að hætta á föstudögum kl. 14 í stað 16. og fannst mikill munur! En eitthvað fannst þeim lítið verða úr þessum klt. milli kl. 13-14 en milli kl. 12-13 höfðu þeir matarhlé, hættu þeir því þá hið snarasta og lauk þá degi kl. 12 Þetta virkaði vel þartil það rann upp fyrir þeim að það tæki því nú varla að byrja á neinu verki á föstudögum fyrir skitna þrjá tíma. Því ákváðu þeir að skynsamlegast væri að leggja alfarið niður vinnu á föstudögum!
Svar mitt hlýtur því að vera í ljósi þessa, að ALDREI sé það stutt eftir að vinnuvikunni að eigi taki því lengur að reyna að gera eitthvað af viti!"
Er af þessu ljóst að hjer er á ferðinni enn mótsagnakenndara vandamál en vjer töldum í fyrstu og er það í senn rökfræðilegt, heimspekilegt og með augljóst hagnýtt gildi.
engin vinnan á flöskudögum þá eru það í það minnsta 5 dagar sem maður getur bleit sig í ákavit og kampavín heir heirog skál
Það var einmitt með sömu rökum sem ég komst að því að það tæki því nú varla að mæta til vinnu aftur eftir sumarfrí. Þá er nefnilega svo stutt í haustferðina á vegum vinnunnar. Svo tekur því ekki að mæta eftir vinnuferðina því þá er svo stutt í helgarferðina með makanum. Þegar henni er lokið er allt of stutt til jóla að það taki því að vera að mæta fyrr en eftir áramót. Hins vegar vita það flestir að tíminn á milli áramóta og páska er ósköp lítilfjörlegur og fátt að gerast, þannig að það er alveg eins gott að sitja heima og plana páskafríið. Eftir páska úir svo og grúir af allskyns frídögum að það er bara heimska að vera að eltast við að vera að mæta í vinnu.
Svo kemur aftur sumarfrí! [Ljómar upp]