Nýlega voru teknir upp nýir stjórnarhættir í S-Kóreu. Það var gert til þess að reyna að endurvekja áhuga almennings á stjórnmálum og getur almenningur byrjað að læra á nýja kerfið allt frá leikskólaaldri.
Í stað flókinna kosningaferla er búið að einfalda reglurnar til muna og gera þær meira spennandi. Í stuttu máli sagt má líkja þessu við útileikinn "King of the hill" eða "Konungur hæðarinnar". Fyrir þá sem vita ekki hvað leikurinn gengur út á þá fara keppendur og finna sér brekku, einn byrjar sem kóngur og staðsetur sig efst í brekkunni. Hinir byrja neðst og eiga einfaldlega að komast upp brekkuna á meðan kóngurinn hrindir þeim niður eftir bestu getu. Sá sem kemst á topp brekkunnar er þá orðinn kóngur og leikar hefjast á ný.
Munurinn á leik þessum og stjórnarfarinu í S-Kóreu er sá að þar er ríkjandi flokkar með völd yfir forsetastólnum. Stjórnarandstaðan reynir þá að komast í stólinn meðan ríkjandi stjórn hrindir þeim frá eftir bestu getu. Heyrst hefur að stjórnmálaflokkar þar í landi leiti nú stíft eftir ungum trúgjörnum sumo-glímuköppum sem enn hafa ekki mótað pólitískar skoðanir sínar og því ætti að verða spennandi að fylgjast með samkeppninni á næstunni.
Miðað við þetta, þá ætti ekki að vera mikið mál að hertaka S-Kóreu. Ég legg til að þú berir þetta undir þremenningana Hákon, Vladimir og Hakuchi.
Hmmm... Þetta er nú bara ekkert mikið vitlausara en það stjórnarfar sem við búum við!
Stórskemmtilegt fjelagsrit. Þó þær hernaðaraðgerðir á vegum Baggalútíu er nú standa yfir sjeu fyrst og fremst í Evrópu væri óvitlaust að þjer leggðuð undir yður S-Kóreu.
Þetta er miklu betri og ódýrari aðferð en kosningar. Einnig er hún prýðisgóð skemmtun. Kannski að einhver myndi einhvern tímann horfa á beinar útseningar frá Alþingi ef svipaðir hættir væru teknir upp hérlendis.
Ég maeli frekar med ad Baggalútía hertaki Singapore og Hong Kong. Thad eru lítil svaedi og tekur thví ekki langann tíma ad hertaka thau. Thau eru baedi hins vegar mjog mikilvaeg, baedi hernadarlega og vidskiptalega.
Ég hef vitneskju um að þarna séu einungis litlir gulir kallar, svo með einfaldri rykgrímu ætti að vera leikur einn að ná í þennan valdastól. Og það skemmtilegur leikur. Þá er bara að koma sér inn í landið. [dulbýr lappirnar sem skó og æfir sig í að ganga á rassinum]