Rumputuski og Rassmus Klumpur
rifust út í annað
ákvað sjálfur Æðsti-Strumpur
að orðhögg væri bannað.
Mótmæltu nú margir þá
Megaman og Guffi
strax þeir fóru að stappa á
og strumpurinn varð að buffi.
Lási Lögga spilltur var
lét báða þrjóta vera
en fjarlægði þá er fyrir bar
fjandmenn hins opinbera.
Brölti hann inn á Baggalút
og Barbapabbi varð fangi
fjöldaslagsmál þá flæddu út
fjandinn á lausagangi.
Hnefahöggin dundu á
höfðum tuskudýra
fjendum Steinríkur stökk á tá
svo stóðu út garnir og nýra.
Flaug nú fögur Hexía
framhjá Lása Löggu
dýr var Dauðans lexía
drepinn af norninni snöggu.
En Barbapabbi í búri sat
breytti sér í lykil
skreið hann inn um skráargat
skein þá sólin mikil.
Hér er nú friður, hér er ró
og hamingjan öll á iði
en gangir þú inn á Gestapó
gakktu í réttu liði.
Lærði-Geöff
Já, alveg einstök. En þið áttuð náttúrlega aldrei að frétta að ég væri fær um morð...
Þessar vísur lýsa veruleikanum í dag. Það er aldrei of snemmt að kenna börnunum hvernig heimurinn virkar í raun og veru.
Glæsilegt! Ég var búin að gleyma að Barbapabbi gat breytt sér í hvað sem er.
[flissar]