Hallar undan fæti og ekki er á vísan að róa.
Hallarekstur
Tíðrætt hefur ýmsum verið í fjölmiðlum um óhóflegan hallarekstur ríkisstofnana.
Þannig háttar til að ég hefi verið starfsmaður ríkisstofnana í aðalstarfi um margra ára skeið og hlutastarfi síðustu 10 ár eða svo en aldrei verið starfsmaður í höll eða þvíumlíku plássi.
Reyndar lifðum við starfsfélagarnir eins og kóngar oft á tíðum en þá vorum við í fríi.
Nú spyr ég. Hvar eru allar þessar hallir ?
Margir Versalir sem mætti einfaldlega selja til að hjálpa bönkunum sem eiga svo bágt.
Já hjálpum þeim var víst kyrjað hér um árið.
Hverjir eru þessir "þeir" ?
Ég held að þú sért að misskilja þetta. Það er þessi Halli sem rekur þetta og hann er orðinn rosalega umsvifamikill hann Halli.
Þessir 'þeir' voru rannsakaðir mikið síðasta vetur og voru líklega, án þess að sannað verði með óyggjandi hætti, óvinir ríkisins.
Vjer teljum líklegra að þetta sje Sneglu-Halli afturgenginn [Hrökklast afturábak og hrasar við].
Þetta er allt einn og sami maðurinn... Viðskipta Halli, Rekstrar Halli og Halli Ríkissjóðs.
Er Halli ekki bróðir Alla? (,,opið fyrir Alla" og á mörgum fernum: rífið Alla leið).
Svo tileinkaði íhaldið einu sinni heila kosningabaráttu honum Alla, kjörorðið var víst ,,X-D, fyrir Alla"