Hér tengill á hljóðrit sem ég samdi nýverið í fellahverfinu og er það laust við fordóma, móðganir og orðagjálfur og vonandi einhverjum til ánægju.<br />
Minnir helst á píanótónlist þá sem gerði allt vitlaust í lok tíunda áratugarins. Gott mál.
Þetta er fínt til að spila þegar maður [dæsir mæðulega og lítur út um gluggann]
Ég er alveg heillaður, búinn að spila þetta aftu og aftur í allt kvöld, mætti vera lengra. Takk fyrir mig.
Þetta er afar áhlýðilegt verð ég að segja. [Ljómar upp]
Eitthvað segir mér líka að stefið atarna væri Ívari að skapi, enda er oggulítill Japan / David Sylvian keimur af þessu.
Já það er ekki laust við að hér sé um stórkostleg áhrif frá David Sylvian. Enn fremur þykir mér svolítil Ryiuchi Sakamoto lykt af þessu.