Undirritaður og heittelskaður hefur heitið að stjórna Bakkusiðkun af meiri aga!
Fyrir ekki svo löngu fæ ég símtal frá Lögreglunni sem hljómaði á þennan veg :
Löggi: (nafn mitt)
Ég: já
Löggi: okkur hefur bundist kæra á hendur iðar!
Ég: Nú?
Löggi: þrjú vitni hafa tjáð sig um að hafa séð þig sparka í
bílhurð og kíla í gegnum hliðarrúðu.
Ég: það getur ekki verið ég er hvorki aumur né rispaður þó
svo ég muni ekki eftir þessu kvöldi vegna ölvunar
Löggi: já ok, hvenar er best fyrir þig að koma til yfirheyrslu
blabla og ég drullast í yfirheyrslu.
Fæ að vita að það er portúgali sem á bílinn og málið sé í rannsókn punktur.
svo núna bíð ég spenntur en er í millitíðinn búinn að heyra frá heimildarmönnum að maðurinn hafi verið sendur úr landi.
hver veit hvað gerist en ég er eftir þessa reynslu staðráðinn í að hafa betri stjórn á freistingum Bakkusa. þakka ykkur fyrir að vera sáli í þessari vikunni
One drink to many ... muna að sleppa honum þá gerist ekkert sem lögguna varðar eða lútinn.
Skál
Ugla. Elsku dúllurass, skrifa þú þá félagsrit. Annars er ég allveg sammála að þetta er ekki upp á marga fiska.
Mér hefur ekki dottið neitt sniðugt í hug áratugum saman.
Gagnrýni bara aðra og þykist vera eitthvað betri...
Hvað er þetta, maður á náttúrulega bara að gera hlutina með stæl!! Þrjú rokkstig.