Spáð í svefnleysi þjóðarinnar og úrræði til að koma á almennum útsvefni og reglu.
Hafið þið spáð í þann leiða sið okkar Íslendinga að vaka of lengi fram eftir nóttu. Þetta verður til þess að við erum sjaldan útsofin. En eins og vísindamenn hafa sagt okkur lengi þurfum við að vera vel útsofin. Ekki að furða þó verg þjóðarframleiðsla okkar sé mun lægri en t.d. Norðmanna, erkióvina okkar. Aðrar þjóðir eru betri í fótbolta, í mjólkurframleiðslu, í stærðfræði, í öllu svei mér þá. Allt vegna þess að við erum ekki útsofin. Við erum alltaf að drolla þetta fram eftir annað hvort á s.k. alneti að ausa úr viskubrunnum okkar eða drepa hvort annað í þykjustunni ljótukallaleik. Nú eða þá full fram eftri nóttu á einhverjum pöbbum. Drollararnir halda svo vöku fyrir þeim skynsömu með hávaða og látum eða söng og gleði eins og þeir fyrrnefndu kalla það. Það verður að segjast eins og er að ég hef áhyggjur af þessu vandamáli, sem meðal annars kristallast í þessari ósmekklegu undirskriftarsöfnun nokkurra portkvenna hér Ég hvet ykkur að berjast með mér gegn þessu vandamáli. Fólk virðist halda að það hafi rétt til að skemmta sér og öðrum í miðbæjum hér á Íslandi og stuðla þannig að eigin og annara vansveftu. Þetta verður að stoppa. Ég var að spá í að skipuleggja fjöldamótmæli og ef þið viljið styðja minn göfuga málstað þá sofið yfir ykkur í fyrra málið og kennið því um að nágrannar ykkar hafi haldið fyrir ykkur vöku. Við stefnum á algjört hljóð og útgöngubann á miðnætti, ekkert minna en það dugir.
Helsta ástæða þess að ég fæ ekki nógan svefn, er alltof löng viðvera hér á Gestapó.
Til hamingju með rafmælið.
Það eru náttúrulega til sérstakir skemmtistaðir þar sem fólk getur ólmast og andskotast fram eftir nóttu. Er það ekki nóg ?
Eigi er hádegið á rjettum tíma hjerlendis. Það er í raun og veru um kl. 13:30 en eigi kl. 12. Kann þetta að skýra undarlegan svefntíma þjóðarinnar að hluta til [Uppgötvar að í raun og veru er eigi komið miðnætti þó klukkan sje 1:14 og losnar því við allar áhyggjur af að vera enn vakandi].
Veltir dreymandi fyrir sér orðunum að sofa og sofa út ummmmmmmmmmahhhhhhhhhhh. NEI..!..þetta má ekki, kannski seinna.
Ég hélt að skortur á svefnbæjum væri ekki vandamál hérlendis. Listinn er ótrúlega langur.
Þetta er góður punktur hjá Vlad vandamálið er ekki að við förum seint að sofa, heldur veldur tímaskekkjan því að við verðum að vakna alltof snemma.
Þetta er mjög þarft rit hjá þér. Þetta með að sofa út verðu snúið hjá mér. Því ég fer alltaf fyrstur í bælið og júníorinn líka en frúin vakir frameftir öllu yfir helvítis imbanum glápandi á endalausar óraunveruleikaþvælur og kjaftagang. Heimilisböl.
Ég skrádi mig á listann, eins og thú lagdir til feministi.
Ég held ad thad aetti ad fella nidur skatt á eyrnatoppum.
Og já... til hamingju med rafmaelid.
Saûde!
[geispar] Er ég búinn að sofa nógu lengi, Feministi? Feministi? Einhver? Eru allri löngu vaknaðir og farnir?
[umlar eitthvað óskiljanlegt leggst aftur á koddann og heldur áfram að sofa]