— GESTAPÓ —
Fuglinn
Óbreyttur gestur með  ritstíflu.
Sálmur - 9/12/04
Sumarfugl

Hvar ertu fallegi sumarfugl?
Þar sem ég horfi út yfir hafið
og hlusta á öldurnar strjúka hart grjótið,
finn ég fjaðrir þínar á fingrum mér.
Ég finn hitann og ilminn.

En þú ert auðvitað farinn.
Og það eina sem ég hef
eru þessar stöku fjaðrir sem ég finn
þegar ég tek til í húsinu.

Ég safna þessum fjöðrum
en það er sama hvað ég reyni
ég fæð þær ekki til að fljúga.

   (2 af 2)  
9/12/04 01:02

hundinginn

Magnað. Til hamingju með þitt fyrsta fjelagsrit. Sjeð hefi jeg þau snauðari. Það er ákveðin dýpt í þessu.

9/12/04 01:02

Skabbi skrumari

Flott stemming... salút...

9/12/04 01:02

Gísli Eiríkur og Helgi

Bragi veri með þér fínt

9/12/04 01:02

Krókur

Afar snoturt.

9/12/04 01:02

Heiðglyrnir

Alveg einstaklega efnileg byrjun, Til hamingju með fyrsta félagsritið. Bara fínt.

9/12/04 02:01

Fuglinn

Takk fyrir mig.

9/12/04 02:01

Grýta

Flott hjá þér Fugl

Fuglinn:
  • Fæðing hér: 23/8/05 18:57
  • Síðast á ferli: 15/11/06 18:32
  • Innlegg: 24