Hver steypuhrærivélin af annari hefur poppað hér inn undanfarið og farið offörum í heimsku og fábjánahætti sem er ekki siðuðu fólki sæmandi.
Hvað í ósköpunum er að koma hér fyrir? Hér mætti halda að væri verið að steypa upp gegnheila kárahnjúkavirkjun og malbika restina af hálendu ef marka má fíflaganginn í umræðunum hérna.
Hættu allir á lyfjunum sínum í sumar?
Þetta er hressandi - ég segi ekki annað. Það er líka svo skemmtilegt við Gestapó að aðeins þeir sem passa inn í haldast þar inni. Það á eftir að koma í ljós hvort félagsritshöfundur er í þeim flokki eður ei.
Ég ætla að taka pillurnar mínar áfram og vera æðislegri en þið allir!
Ef að klaga yfir skorti á gáfulegum umræðum í stað þess að reyna að koma af stað alvarlegri samtölum er æðislegra en að steypa og leika sér, þá vil ég frekar steypa en að væla.