Hættum þessum tvískynnung og viðurkennum að okkur líkar að hafa klám og bjórauglýsingar sem beint er sérstaklega til unglinga allstaðar.
Misþyrmingar á unglingum og börnum. Hópauðganir, endaþarmsmök, sifjaspell, flassarar á róluvöllum, káf og klámsýningar.
Hvað er í gangi ? Af hverju eru allir með aulasvip í forundran hvernig komið er orðið í þessum málum. Þriðja hverju kvenkyns barni á Grænlandi hefur verið nauðgað fyrir 15 ára aldur ? Hví skyldum við á Íslandi vera eitthvað skárri, þó einhverjar "rannsóknir" sýni smá lægri tölur. 100 yfirheyrslur á smábörnum í Barnahúsi vegna meintra brota á þeim af pabba, afa, frænda eða Guð veit hvað. Samfélagið okkar er allt orðið eitt klám og kæruleysi. Hvert sem maður lítur er allskonar drasl auglýst með fáklæddum stelpum niðurfyrir fermingaraldur, klæddum eins og mellur eða daðurdrósir.
Ég fékk þetta röflkast í morgun á leiðinni í vinnuna. Á rauðu ljósi var fyrir framan mig snattbíll frá drykkjarvöruinnflytjenda allur merktur flennistórum bjórauglýsingum og yfir þveran afturendan var út flött fáklædd stelpa sem látin var segja,:
FUCK ME ! I AM FAMOUS
Kunni ekki við það. Sonur minn 10 ára var með í bílnum og fólk var að fara yfir gangbrautina á grænu grænhöfði minn.
Hópauðganir já? Avion Group og Baugur Group eru auðvitað dæmi um hópa sem hafa auðgast mikið undanfarið.
Fólk hér á íslandi sem hefur ekki séð þetta er blint.
Þegar ég var 6 ára stökk á mig flassari, þegar ég var 12 ára bauð ókunnugur maður úti á götu mér pening fyrir að hafa kynmök við sig og þegar ég sagði nei, reyndi hann að nauðga mér.
Ég hef síðan lent í einu svona atviki síðan, en það var reyndar erlendis.
Það sem ég er að reyna að segja, er að börnin okkar eru í hættu nánast hvar sem er.
Muniði eftir stelpunni sem var rænt á leiðinni heim úr skólanum og svo skilin eftir uppi á heiði?
Þessi atvik hjá mér gerðust bæði mjög nálægt heimili mínu, en ég vil geta þess að ég bý í einstaklega rólegu hverfi.
Þetta er hreinlega allstaðar.