Athugið að þetta er fyrirfram gagnýrni. Hef bara heyrt að þessi Einar Bárðar sé að smala skallapoppurunum saman einu sinni enn til að syngja þessa lummu einusinni enn. Það verður aldrei hægt að gefa meira en eina stjörnu fyrir þetta brambolt.
Af hverju í ósköpunum er þetta popparagengi svona ófrumlegt. Það er jú göfugt að hjálpa nauðstöddum en er þetta ekki komið nóg, það er alltaf þetta sama lag og þetta sama lið, popparaelítan. Væri ekki nær að fá söng og hljóðfæraleikara Baggalúts til að semja og flytja eitthvað fallegt. Ég bara veit að þjóðin myndi taka því miklu betur því þar eru á ferðinni sannkallaðir listamenn.
Ég meinaða er ekki komið nóg af gamla skalla liðinu. Þetta er svo steingelt og Einar umbi er bara að reyna að koma Nælon dúkkulísunum sínum á framfæri og sjálfum sér nátturulega. Maðurinn er með athyglissýki á háu stigi.
Ég er alveg sammála. Það verður ekki flóafrður fyrir þessu endurunna lagi öll þessi jól og áramót og langt fram að páskum ef verstu martraðir manns verða að veruleika. [Hryllir við]
Nú er bara að tímamæla ómyndina og vera viðbúinn að slökkva takkanum allan daginn og byrja að telja. Gott ef að gamla lagið hafi ekki verið í um það bil talningunni frá einum og í 412.. [Byrjar að setja upp mælitæki og reiknilíkön út um allt]
ARRRGHHH !! Þessi umræða um hvimleið jólalög olli því að vjer erum komnir með Last Christmas á heilann. Næstleiðinlegasta jólalag í heimi.
Niður með popptónlist og allan þann sora er henni fylgir!
Upp með sköpunarglaða einstaklinga sem er ekki í tónlistarbransanum peninganna vegna!
Vlad: Hvad er thá leidinlegasta lagid?
Annars er ég sammála thessu. Thetta er omurlegt framtak hjá Einsa smjorsýru.
Leiðinlegast: Brátt koma jólin, íslenskun á Gente di mare. Fróðlegt væri að vita hvaða Mammonssjúka mannætuapa datt í hug að gera það að jólalagi (vjer munum það eigi).
Ætli engin hafi sagt Umberto frá þessari nauðgun, og herra Aðal, ég nefndi ekki smjörsýru á nafn, ekki Nafni heldur. Kanski er komið eitthvað í staðin fyrir mjólkurafurðir hjá heimsins mesta umba
Það vantaði bara Geir Ólafs og Gilzinegger til að kóróna athyglissýkina... en þeir hefðu kanski skyggt á Einsa.