— GESTAPÓ —
Leir Hnoðdal
Nýgræðingur.
Dagbók - 9/12/04
Tómbólu úthlutun

Vegna fjölda áskoranna ákvað Sigurbjörn litli og vinir hans að endurskoða úthlutun úr tombólusjóði sínum

Það var á föstudag sem Sigurbjörn litli 7 ára og vinir hans héldu tombólu fyrir utan hverfisbúðina til ágóða fyrir Hundholt, velgjörðarfélag fyrir flækingshunda.

Í dag tilkynnti Bjössi, sem formaður tombólunar fyrir hönd sjóðfélaga að söfnarfénu, krónum 1175 yrði ekki öllu úthlutað til Hundholts að þessu sinni, heldur hefðu þau ákveðið að deila söfnunarfénu milli fleiri þurfandi í einstaklinga góðgerðarstofnana í þjóðfélaginu.

Skipting fjárins ku hafa verið samhljóða ákveðin eftirfarandi :

Hundholt fær 500 kr til kaupa á hundaskítspokum.
Síminn fær 125 kr til langningu breiðbands á Langanesi
Bjarni Ármanns fær 100 kr til að kaupa hlutabéf
Landhelgisgæslan fær 175 kr fyrir servéttum á veisluborð
Baggalútur fær 200 kr sem listamannalaun fyrir nýja plötu
Lalli Jones fær 75 kr fyrir spritti

Þá ákvað tombóluráð að verja öllum ágóða af næstu tombólu til að gefa til ríkisins vegna niðurgreiðslu erlendra skulda

   (15 af 22)  
9/12/04 07:00

B. Ewing

Þetta eru allt göfug málefni og góð. Sigurbjörn litli á heiður skilinn.

9/12/04 07:00

Ívar Sívertsen

Hvað með Sundabraut? Fær sjoppan sem verður þar ekkert?

9/12/04 07:01

Gísli Eiríkur og Helgi

Fínt rit fínir krakkar

Leir Hnoðdal:
  • Fæðing hér: 11/8/05 13:24
  • Síðast á ferli: 15/9/06 10:29
  • Innlegg: 2
Eðli:
Heiðarlegur ungur maður í anda sem lætur sér ekki allt fyrir augum brenna. Lifir í von um að einn daginn hlotnist honum sá heiður að losna við viðurnefnið Nýgræðingur og fá bókmenntaverðlaun Baggalúts ef þau eru þá til. Er líka tilbúinn að taka að sér ábyrgðarstarf bjóðist það hjá ríkistjórn Baggalúts. Kann vel að meta bitlinga svo nálgast framskóknarmennsku af bestu sort. Lifir frekar flóknu lífi en þykir gott matarkex frá Frón. Kann að meta konur með gott hjartalag og húmor.
Fræðasvið:
Rannsóknir á salernis-veggjakroti frá 7. áratug síðustu aldar og þýðing þeirra og uppeldisleg áhrif þeirra á nýráðna Hæstaréttardómara. Uppfyndningar á lími sem límir allt hafa þó verið mínar ær og kýr.
Æviágrip:
Fæddur á sjúkraskýli nálægt 66 gráðum norður. Móðirinn var rauðhærð og afneitaði skáldinu "med det samme". Hefur unnið á eyrinni, sótt sjó og dvalið til sveita og á möl. Er félagi í uppfyndningasamtökum lýðveldisins og hefur fórnað miklu af frístundum sínum við að finna upp lím sem límir allt. Stundað fornleifarannsóknir á salernum með styrk frá Gustafsberg A/S í Noregi.