~Frumkapítalískt vöruþróunarkerfi öfgasinnaðra nýlenduherra~
Ég fór til Kaupmannahafnar fyrr á árinu. Árinn komst í veskið mitt. Honum þykja peningaseðlar góðir. Og matarlystin er hressileg. Ég fékk gott að borða á hóteli. Börnin fengu vont að borða. Samt fengu þau það sama og ég. Við gerum margt saman. Fleira gerum við í sitt hvoru lagi. Það er í góðu lagi að einangra sig frá konunni stundum. Á stundum vilja börnin losna frá foreldrunum. Tívolí er slík "stund". Nema þegar kemur að miðakaupum. Þá skal haldið saman. Samanheftur plastborði tryggir dagsbrjálæði. Enda var leikurinn til þess gerður. Óttalega gátu þessar elskur hlegið. Konan hló líka mikið. Mikið held ég að hún sé með Árann á speed-dial.
~Öll sár gróa um síðir~
hmm... áhugavert... mér datt það í hug líka, eftir að hafa lesið ykkar komment... en OmegaOne kunni ekki að hætta að skrifa og því getur ekki verið að þessar stuttu klausur séu frá honum komin...
Já. Það er rétt. Hann kunni ekki að hætta svona snemma. Kanske er þetta skydmenni.
Kannski fór hann á námskeið. "Keeping within the accepted boundaries of society".
Samhvæmt áreiðanlegum heimildum þá hefur enginn notandi fleiri en eitt egó hér á Gestapó.
Og hvorki eru til notendur án egóa, né egó án notenda. Hinsvegar skilst mér að margir notendur megi hafa mörg egó.
Allt þetta skiptir hins vegar óverulegu máli sje höfð í huga sú staðreynd að Glúmur er allir gestirnir hjer að undanskildum oss, Mosu frænku og e.t.v. ritstjórn.