~Troddu því í pípuna þína og reyktu~
Það er keppni í gangi. Hugsanakeppni sem við tökum flest þátt í. Ég tek þátt, glaður. Glaður maður setur sig framar í röðina. Að komast framfyrir í augum annara er erfiðara. Dyraverðir samfélagsins eru ekki vöðvabúnt með hnefann krepptan. Kreppan leiddi af sér harðgerða menn. Sumir þeirra eru á lífi í huga okkar, aðrir á lífi sem merki. Merkilegir menn jafnt sem ræflar starfa í merkilegum jafnt sem ræfla-störfum. Í grunnskólunum hamast börnin við að læra ekki og gangaverðir hamast við tyggjóklessur. Tyggjókynslóðin kom seinna, kreppan kom fyrst, startaði keppninni. Og ég er að tapa.
~Dósent í dósafræðum~
Hafðu ekki áhyggjur Anar. Þegar þú tapar einni keppni, þá vinnuru aðra og öfugt.
[Hvíslar] Jú einmitt, þú ert greinilega búinn að koma upp um mig. Ég kynni nú samt að meta það ef þú værir ekki að auglýsa hvaðan ég hef alla mína visku.